Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Athugið að ef verið er að skrá inn starfsmann utan stofnunar þá þarf að velja viðfang.

...

17210101101

Sviðsskrifstofa H&F

17210101102

Félagsvísindadeild

17210101103

Lögreglufræðideild

17210101104

Lagadeild

17210101105

Sálfræðideild

17210101106

Kennaradeild

17210101201

Sviðsskrifstofa H&V&R

17210101211

Heilbrigðisvísindastofnun

17210101212

Framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum

17210101213

Hjúkrunarfræðideild

17210101214

Iðjuþjálfunarfræðideild

17210101221

Rannsóknastofa Borgum

17210101222

Auðlindadeild

17210101223

Viðskiptadeild

17210101231

Tölvunarfræði HR

17210101401

Rannsóknaleyfi

17210101411

Vísindasjóður

17210101412

Rannsóknasjóður

17210101432

Rannsókna- og kostnaðarreikningar FHA

17210101721

Rekstur fasteigna

17210101731

Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð

17210101741

Upplýsingaþjónusta og bókasafn

17210101751

Þjónustuborð nemendaskrár

17210101761

Náms- og starfsráðgjöf

17210101901

Rannsóknamiðstöð HA

17210101911

Símenntun HA

17210101921

Miðstöð skólaþróunar HA

17210101931

Sjávarútvegsmiðstöð HA

17210101991

Rannsóknamiðstöð ferðamála

Samþykkjandi beiðnar er skráður yfirmaður starfsmanns en hægt er að velja annan samþykkjanda ef við á í vallistanum „Samþykkjandi“.

...

Varðandi ferðir erlendis þá eru dagpeningar vegna uppihalds erlendis greiddir í stað útlagðs kostnaðar, en gistikostnaður erlendis er endurgreiddur samkvæmt reikningi (sá kostnaður má þó ekki vera hærri en dagpeningareglur ríkisins vegna gistinga erlendis kveða á um). Greiddir eru dagpeningar hálfan dag ef flugið út er um miðjan dag eða síðar. Það sama á við um lendingartíma á Íslandi á heimleið, þ.e. ef komið er til Íslands fyrripart dags eru greiddir ½ erlendir dagpeningar og útlagður kostnaður eftir að komið er til Íslands. Útlagður kostnaður er endurgreiddur vegna kostnaðar innanlands. Vegna þessa er mikilvægt að flugtími út og heim komi fram í ferðabeiðni og að útlagður kostnaður á Íslandi sé áætlaður á ferðabeiðni. Varðandi ferðakostnað til og frá flugvelli erlendis þá eiga erlendir dagpeningar að dekka slíkan kostnað (skv. reglum ríkisins), en sé slíkur kostnaður 25% af eins dags dagpeningum eða meira er þó heimilt (skv. viðmiðum HA) að óska endurgreiðslu samkvæmt kvittunum (ca. 3500 5000 kr. eða meira).


Þátttaka annarra í kostnaði

...

Algengar spurningar og svör

  1. Hver er munurinn á ferðabeiðni og bókunarbeiðni?
    Ferðabeiðni er í Orra, hún er beiðni til yfirmanns um ferðaheimild og listar áætlaðan kostnað (orri.is). Bókunarbeiðni er beiðni til nemendaskrár um að bóka innanlandsflug, gistingu eða bílaleigubíl (hjalp.unak.is / Student Registry / Booking request).

  2. Hvernig veit sá sem býr til ferðabeiðni í Orra að hún hafi verið samþykkt?
    Sá sem býr til ferðabeiðni fær tölvupóst þegar hún er samþykkt. 

  3. Hvenær má senda inn bókunarbeiðni?
    Ekki skal senda bókunarbeiðni fyrr en ferðabeiðnin í Orra hefur verið samþykkt. Mikilvægt er að FB númer sé skráð á ferðabeiðni svo hægt sé að fletta upp samþykktarsögu áður en bókað er. 

  4. Ef samþykkjandi er fjarverandi og getur ekki samþykkt ferðabeiðni sem liggur á, má bóka?
    Ef samþykktaraðili eða staðgengill hans getur staðfest samþykki með tölvupósti til nemendaskrár er hægt að ganga frá bókun samkvæmt bókunarbeiðni. 

  5. Hvert er verð bílaleigubíls í Reykjavík 1 dag?
    Áætlun kostnaðar við bílaleigubíl miðað við „eðlilegt“ snatt innanbæjar í Reykjavík getur verið um 5-8 þúsund kr.

  6. Hvert er ca. verð á eins manns herbergi innanlands þeirra hótela sem við höfum samninga við?
    HA er með samninga við KEA hotels og Icelandair hotels og er verð að jafnaði á bilinu 15.000 – 25.000, hærra verð á við um sumartímann og fram á haust. Nánari upplýsingar má nálgast hjá nemendaskrá. Eins og ástandið hefur verið í Covid þá kannar nemendaskrá með verð á hóteli í hvert sinn enda hefur framboð verið breytilegt. Í Keflavík erum við með samning við Aurora hotel á Keflavíkurflugvelli.

  7. Hvað kostar flug suður og til baka ca?
     Núna, haust 2022, fer verð eftir því með hvað miklum fyrirvara flugið er pantað. Frá 30 þús. upp í 65.000 þús.

  8. Ef ég keyri suður og til baka á eigin bíl hvað fær ég greitt og hverju skila ég inn?
    Greiddar eru um 38.000 fyrir akstur milli Akureyrar og Reykjavíkur, báðar leiðir, en skila þarf inn t.d. bensínnótu eða einhverju sem staðfestir að ferð hafi verið farin.

  9. Ef það bætast við kostnaðarliðir eftir að beiðni er samþykkt, er hægt að færa þá inn?
    Ekki er hægt að bæta við kostnaðarliðum eftir að ferðabeiðni hefur verið send til samþykktar.

  10. Hvert er verklagið ef ferð er afbókuð?
    Eyða þarf ferðabeiðni og hafa samband við nemendaskrá (áður en að brottfarardegi kemur).

  11. Hvernig er hægt að skrá ferðabeiðni fyrir aðila sem ekki er með íslenska kennitölu?
    Nota þarf gul ferðabeiðnablöð sem fáanleg eru hjá nemendaskrá.

  12. Hver skráir ferðabeiðnir fyrir stundakennara eða gesti?
    Sá sem er að fá viðkomandi ætti að ganga frá ferða- og bókunarbeiðnum.

  13. Hver samþykkir ferðabeiðnir sem greiddar eru úr rannsóknarverkefnum (á sér viðföngum)?
    Kristín Sigurðardóttir samþykkir flestar slíkar ferðabeiðnir.

  14. Ég þarf að bóka hótel erlendis, á ég að reikna með dagpeningum til að dekka þann kostnað?
    Nei gisting erlendis er endurgreidd skv. kvittun.

  15. Ég er með kvittanir vegna útlagðs kostnaðar, hvað geri ég við þær?
    Vista þarf kvittanir inn í ferðabeiðnakerfinu, flipa Ferðareikningar (velja „Ferðareikningar uppi í vinstra horni, opna beiðnina ef hún er ekki opin og smella á bréfaklemmu til að setja inn viðhengi). Lendir þú í vandræðum sendu þá kvittanir á kristinsig@unak.is

  16. Ég þarf ferðast frá flugvelli erlendis á áfangastað, eiga dagpeningagreiðslur að dekka þann kostnað eða fæ ég þann kostnað endurgreiddan?
    Dagpeningar eiga að dekka ef um smotterí er að ræða, ca. 3.500. Ef kostnaður er meiri en það má skila inn kvittun vegna þess og fá endurgreitt.

  17. Hverjar eru upphæðir dagpeninga erlendis?
    Sjá t.d. https://www.stjornarradid.is/verkefni/mannaudsmal-rikisins/kjarasamningar-laun-og-starfskjor/ferdakostnadur/

  18. Mig vantar notandanafn inn í ferðabeiðnakerfi Orra, við hvern hef ég samband?
    Kristínu Sigurðard. kristinsig@unak.is eða Aðalheiði Magnúsd. adalheidur@unak.is).*

  19. Skiptir máli hvaða vafri er notaður til að tengjast ferðabeiðnakerfi?
    Mælt er með að nota Chrome og leyfa þarf popups, ef vandræði koma upp við að tengjast í fyrsta skiptið getur verið að hreinsa þurfi vafra, sjá leiðbeiningar undir „Orri“ á unak.is

  20. Ég er í vandræðum að komast inn í ferðabeiðnakerfi Orra þegar ég er staddur/stödd utan háskólans, hvað veldur?
    Nú er hægt er að tengjast ferðabeiðnakerfi Orra á slóðinni http://oebs.orri.is í gegnum 4G eða Wifi bæði innanhúss og utan. Hvort tveggja byggir á því að þið séuð með kveikt á VPN. Ef í síma eða sækið þið Any Connect á App store eða Google Play og setjið upp skv leiðbeiningum Kennslumiðstöðvar hvort sem er á símanum ykkar eða ipad. Velja þarf hópinn „Starfsmenn“ þegar þið skráið ykkur inn. https://wiki.unak.is/display/VIS/Cisco+AnyConnect+VPN

  21. Ég er að fara í vinnutengda ferð en enginn kostnaður fellur á skólann, á ég samt að gera ferðabeiðni?
    Það er gott að gera ferðabeiðni og setja 1. kr. í kostnað og skýringu um að enginn kostnaður falli á skólann. Ferðabeiðni er kostur því þá er alveg ljóst að þið eruð í vinnutengdum erindum á ferðalagi.


  22. Þegar ég skrái mig inn í Orra þá er allt á ensku, hvernig laga ég það?
    Hægt er að velja íslensku í innskráningarglugga Orra, sjá mynd:

    Image Modified



    Einnig er hægt að velja íslensku með því að fara inn í Settings þegar komið er í Orra

    Veljið Settings(Stillingar) og Preferences (Kostir)
    Image Modified

    Veljið Íslensku í valmöguleikunum tveimur undir Tungumál/Languages og smellið svo á Apply (eða Nota) ofarlega hægra megin.
    Image Modified



  23. Hvernig set ég flýtileið inn í ferðabeiðnakerfið af upphafssíðu Orra?
    Veljið Favorites, á Ísl. Eftirlæti Image Modified

    Sláið inn textann Ferða í gluggann Aðgerð og smellið á Hefja þá ætti að birtast listi fyrir neðan, þar þarf að setja hak við „Ferðauppgjör“ og smella svo á Bæta við Eftirlæti fyrir ofan listann og svo Nota (Apply) uppi  hægra megin
    Image Modified


Ef vandræði skapast við gerð ferðabeiðna eða leiðbeiningar vantar endilega heyrið í Kristínu Sigurðard. sem aðstoða með glöðu geði eða lagfæra leiðbeiningar eins og þörf er á.