Byrjið á því að skrá ykkur inn í kerfið.
Stilla tungumál
Veljið Settings(Stillingar) og Preferences (Kostir)
Veljið Íslensku í valmöguleikunum tveimur undir Tungumál/Languages og smellið svo á Apply (eða Nota) ofarlega hægra megin.
Setja Vinnustund og fleiri flýtileiðir á upphafssíðuna
Veljið Favorites, á Ísl. Eftirlæti
Sláið inn textann Vinnustund í gluggann Aðgerð og smellið á Hefja þá ætti að birtast listi fyrir neðan, þar þarf að setja hak við „VinnuStund“ og smella svo á Bæta við Eftirlæti fyrir ofan listann og svo Nota (Apply) uppi hægra megin (á ensku er heiti Vinnustundar „WorkHour“)
Til upplýsinga
...
Hægt er að komast í Orra á nokkra vegu, þ.e. mismunandi slóðir í vafra virka á eftirfarandi hátt:
heima.orri.is gerir notendum kleift að nota Vinnustund hvar sem er, t.d. heima. Einnig geta stjórnendur samþykkt skráningar starfsmanna í Vinnustund og rafræna reikninga í þessu viðmóti.
oebs.orri.is gerir notendum kleift að nota öll kerfi Orra. Tengjast þarf á vinnustað í tölvu sem tengd er með netsnúru. Með þessari slóð komast notendur inn í Ferðabeiðnakerfi Orra ásamt öðrum kerfum svo sem Vinnustund.
askur.orri.is er slóð beint inn á fjárhagsskýrslur, ekki önnur kerfi Orra og ekki í Vinnustund. Stjórnendur hafa aðgang að Aski.