Opnaðu forritið í tölunni og smelltu á Sign In.
Skráðu þig inn í forritið með því að nota unak.is tölvupóstinn og lykilorðið sem þú valdir þegar notandi þinn var búinn til.
Eftir inngskráningu þá opnast nýr gluggi með eftirfarandi eiginleikum:
Hefja fund (New Meeting): Þegar smellt er á örina kemur felligluggi þar sem hægt er að velja þitt fundarherbergi. Ef smellt er beint á New Meeting þá verður til nýtt og tímabundið fundarrými.
Tengjast fundi (Join): Ef þú ert með númer að fundarherbergi þá smellir þú á Join, skrifar inn númerið að fundinum og tengist þannig fundinum.
Búa til fund (Schedule): Skipuleggja fund, t.d. fyrir námskeið.
Deila skjá (Share Screen): Hægt er að tengjast fundi á Zoom og aðeins deila skjánum að tölvunni.
Veldu hvað þú vilt deila á Zoom fundinum.