Aðgangur notenda að teymum sem ekki voru innan HA brotnaði við flutninginn yfir í Menntaskýið.
Þegar starfsmanni HA var boðið í utanhúss teymi varð til notandi í Office365 umhverfi viðkomandi stofnunar/fyrirtækis.
Eftir flutning yfir í Menntaskýið er þessi notandi ennþá að vísa á gamla Office365 umhverfið okkar.
Til að laga tengingu við utanhúss teymi þarf eftirfarandi að gerast:
- eyða gesta notanda úr Office365 umhverfi þeirrar stofnunar sem teymið tilheyrir
- Eigandi teymis þarf að setja sig í samband við tölvudeild (kerfisstjóra) sinnar stofnunar/fyrirtækis og biðja um að gestanotanda verði eytt út úr Office365 umhverfinu
- notandanafn í Office 365 umhverfi inniheldur "unak.is#EXT#"
- bæta notanda aftur í viðkomandi teymi
- Eigandi teymis þarf að gera þetta