Forritið Pebblepad er hannað með það að markmiði að halda utan um persónuleg gögn einstaklinga bæði í námi og vinnu á rafrænu formi. Hönnuðir leggja sérstaka áherslu á að forritið sé notendavænt, sjónrænt og að auðvelt sé fyrir hvern notendahóp að aðlaga að sínum þörfum (https://www.pebblepad.co.uk). Sérstaklega hefur verið unnið með útfærslu á klínísku námi innan heilbrigðisgeirans. Umsjónarmenn verknáms geta sett inn allt sem tengist mati nemenda og þeir aðilar sem eru úti á vettvangi nýtt sér rafræna möguleika forritsins til að meta hvern þátt hjá hverjum og einum nemenda. Forritið er nemendamiðað og gerir ráð fyrir að nemendur beri ábyrgð á þessum hluta í sínum námsferli.
Hjúkrunarfræði
Deila matsblaði með klínískum kennara
Farðu inn á https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak/
Skráðu þig inn.
Smelltu á Resources.
Veldu skránna sem á að deila.
Gefðu skjalinu nafn.
Smelltu á I want to og síðan Share.
Veldu For assessment.
Veldu síðan námskeiðið sem er verið að meta færnina í.
Hakaðu í kassann til að samþykkja skilmálana, smelltu síðan á Share for assessment.
Deila matsblaði með matsaðila (external)
Farðu inn á https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak/
Skráðu þig inn.
Smelltu á Resources.
Veldu skránna sem á að deila.
Gefðu skjalinu nafn.
Smelltu á I want to og síðan Share.
Veldu For assessment.
Veldu síðan námskeiðið sem er verið að meta færnina í.
Hakaðu í kassann til að samþykkja skilmálana, smelltu síðan á Share for assessment.
Smelltu síðan aftur á I want to.
Smelltu á Share.
Smelltu svo á With an external assessor.
Skrifaðu netfangið á matsaðilanum og smelltu á leita takkann.
Þá birtist nafnið á matsaðilanum, smelltu síðan á Share asset til að gefa honum aðgang að skjalinu.
Fylla út miðju- og lokamat í Atlas
Farðu inn á https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak/ til að skrá þig inn á PebblePad.
Settu tölvupóstinn þinn sem notendanafn og lykilorðið sem þú fékkst í pósti. Smelltu á Login to PebblePad til að skrá þig inn.
Smelltu á Atlas táknmyndina.
Finndu námskeiðið (e. workspace) sem skjalið er í, sem þú ætlar að meta, og smelltu á það.
Leitaðu að verkefninu sem á að meta og veldu það með því að smella á það.
Til að velja öll verkefni hjá einum nemenda, skrifaðu þá nafnið á honum og hakaðu í efsta kassann til að velja allt efnið.
Smelltu síðan á Report og Templets.
Þá opnast öll gögnin hjá nemendanum þannig að hægt er að skoða yfirlit í allt mat. Hægt er að niðuhala gögnunum sem CSV skrá, Excel, með því að smella á Download as CSV.
Skrunaðu neðst á síðuna til að skoða svörin á bakvið gögnin.
Til að meta nemendann, smelltu núna á Submissions.
Veldu miðju- og lokamat nemenda.
Þá opnast nýr gluggi með gögnum nemenda, smelltu núna á miðju- og lokamat flipann.
Veldu annað hvort miðju- eða lokamat.
Veldu þá matsþætti sem eiga við í matið á nemendanum.
Svona lítur miðju- og lokamatið út. Munið að vista alltaf skjalið í lok mats á nemenda.
Hvernig klínískur kennari metur nemenda í Atlas
Byrjaðu á því að fara inn á https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak/.
Skráðu inn tölvupóstinn þinn sem notenda og settu inn lykilorðið sem þú fékkst sent í tölvupósti. Smelltu síðan á Login to PebblePad.
Smelltu núna á Atlas táknmerkið til að opna kerfið.
Leitaðu að námskeiðinu (e. workspace) sem nemandinn er í og smelltu á það til að opna námskeiðið.
Hér er listi yfir skjölum, mat á frammistöðu nemenda. Veldu skjal nemenda sem á að meta til að byrja að meta hann.
Farðu í gegnum skjalið og fylltu út matið á nemendanum.
Mundu að skruna alveg neðst í skjalið og smella á Save til að vista matið.
Iðjuþjálfunarfræði
Deila eyðublöðum með matsaðilum
Skráðu þig inn á kennslukerfið Canvas.
Opnaðu tilheyrandi námskeið.
Smelltu á PebblePad.
Þegar komið er inn á PebblePad, smelltu á Resources.
Þá opnast svæði með öllum gögnum sem þú hefur aðgang að, smelltu á tilheyrandi skjal.
Þegar skjalið opnast þá kemur upp sprettigluggi. Hakaðu við I agree to the tersm of usage og smelltu síðan á Continue.
Fylltu út skjalið með þeim upplýsingum sem óskað er eftir.
Smelltu á Save til að vista skjalið.
Smelltu næst á I want to og veldu Share.
Undir glugganum I would like to share this, veldu With an external assessor (For external assessor).
Skrifaðu inn netfangið hjá matsaðilanum(1) og smelltu á stækkunargleraugað(2).
Smelltu síðan á Share asset til þess að deila eyðublöðunum með matsaðilanum.
Fagmappa (Iðjuþjálfunarfræði)
Skráðu þig inn á Canvas.
Opnaðu námskeiðið sem mappan er í.
Smelltu á PebblePad.
Þá opnast PebblePad, smelltu núna á Get creative.
Smelltu á Click to create a Portfolio.
Þá opnast svæði sem þú getur búið til fagmöppuna.
Til að bæta við efni/síðu, smelltu á +Add Content.
Hér er hægt að velja margvíslegar leiðir til þess að bæta við efni.
Hér hefur verið valið að bæta texta við.
Efst í hægra horninu á síðunni er Properties, hér er hægt að gera breytingar á fagmöppunni.
Í Block er hægt að gera breytingar á hverju atriði fyrir sig.
Í Portfolio er hægt að gera breytingar á fagmöppunni.
Til að vista vinnuna, smelltu þá á Save.
Smelltu á Confirm til að klára vistun á fagmöppunni.
Kennarar í þjónustunámskeiðum (PebblePad)
Smelltu á slóðina fyrir neðan til að skrá þig inn á PebblePad eða með því að smella á tengilinn til vinstri á upphafssíðu þjónustunámskeiðsins í Canvas
https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak
Notendanafnið er netfangið þitt og lykilorð fékkstu sent í tölvupósti frá PebblePad. Ef að þú gleymir lykilorðinu er hægt að fara í Forgot password og fá sent nýtt lykilorð.
Ath. Pósturinn frá PebblePad gæti hafa lent í Junk mail.
Nemandinn nær sér í eyðublað með því að smella á Resources.
Nemandinn velur viðeigandi eyðublað.
Þegar nemandi vistar eyðublaðið fer það í rétt vinnusvæði (Workspace) í PebblePad. Eyðublaðið verður aðgengilegt fyrir þá sem eru í sama leiðsagnarhópi. Leiðbeinandi og leiðsagnarkennari fá þannig aðgengi að gögnum nemandans á meðan á námskeiðinu stendur.
Ath. Mundu að haka við Agree to the terms of usage og smella á Continue til að halda áfram.
Til að skoða gögn nemenda, smelltu á bláa hnöttinn (Atlas).
Veldu námskeiðið þitt. H20-thjI1212 þýðir t.d. haust 2020 – þjónusta iðjuþjálfa 2.
Þú hefur aðgengi að eyðublöðum nemandans. Veldu viðeigandi eyðublað í felliglugganum, t.d. námsmarkmið eða mat leiðbeinanda á frammistöðu í vettvangsnámi.
Námsmarkmið nemenda birtast fyrir neðan Submission details. Hægt er að nota leitargluggann með því að skrá þar nafn ákveðins nemanda til að kalla fram matsblöð sem tilheyra þeim nemenda.
Leiðbeinendur í þjónustunámskeiðum (PebblePad)
Smelltu á slóðina fyrir neðan til að skrá þig inn á PebblePad.
https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak
Notendanafnið er netfangið þitt og lykilorð fékkstu sent í tölvupósti frá PebblePad. Ef að þú gleymir lykilorðinu er hægt að fara í Forgot password og fá sent nýtt lykilorð.
Ath. Pósturinn frá PebblePad gæti hafa lent í Junk mail.
Veldu viðeigandi námskeið (þjónusta iðjuþjálfa 1,2 eða 3) – það námskeið sem þú ert leiðbeinandi í.
Þú hefur aðgengi að eyðublöðum nemandans
Veldu viðeigandi eyðublað í felliglugganum, t.d. námsmarkmið eða mat leiðbeinanda á frammistöðu í vettvangsnámi
Námsmarkmið nemenda í sama leiðsagnarhópi birtast fyrir neðan Submission details.
Til að finna markmiðsblöð þíns nemanda er einfaldast að skrifa nafn hans í leitargluggann
Í lok fyrstu viku eiga námsmarkmiðin að vera tilbúin og undirrituð af leiðbeinanda
Ef námsmarkmiði er breytt þarft þú að skrifa undir á nýjan leik
Í stöðu- og lokamati eru markmiðin rædd
Þú merkir við á kvarðanum fyrir markmið
Þú verður að skrá þig inn á PebblePad á þínu aðgangi
Mat nemanda á eigin frammistöðu í vettvangsnámi
Nemandi metur eigin frammistöðu í vettvangsnámi fyrir stöðu- og lokamat
Þar sem nemandinn er notandinn í PebblePad hefur hann ávalt aðgengi að eyðublöðunum sínum, þar á meðal að mati leiðbeinandans
Ætlast er til að nemendur ljúki mati á eigin frammistöðu fyrir mánudag í matsvikunni – fylli matið út á undan leiðbeinandanum
Þú fyllir út mat á frammistöðu nemandans á vettvangi rafrænt í PebblePad í matsvikunni
Mat leiðbeinanda á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi
Þú sækir eyðublaðið mat leiðbeinandi á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi sem merkt er þínum nemanda
Fylltu eyðublaðið út samkvæmt leiðbeiningum
Mundu eftir að styðjast við handbók fyrir mat á frammistöðu í vettvangsnámi í iðjuþjálfun. Hana finnur þú á Canvas síðu vettvangsnáms í starfsréttindanámi
Lagt er til að þú fyllir út rafræna matið í þeirri viku sem matið fer fram þannig að nemandinn þinn sé þegar búinn að fylla út sitt mat á eigin frammistöðu
Mat nemanda á reynslu úr vettvangsnámi
Nemandinn fyllir út skjalið mat á reynslu í vettvangsnámi fyrir lokamatið
Nemandinn skilar skjalinu inn í rétt vinnusvæði í PebblePad í fyrir lokamat
Þá getur þú nálgast skjalið undir Submissions
Þegar nemandi hefur skilað getur þú vistað skjalið hjá þér með því að velja prentara og hlaðið því niður sem PDF skjali
Ef þú ætlar að vista skjalið, skaltu gera það strax þar sem aðgengi þínu að PebblePad verður lokað strax og vettvangsnáminu lýkur
Leiðbeiningar fyrir nemendur í þjónustunámskeiðum (PebblePad)
1. hluti (Innskráning, eyðublöð, námsmarkmið og Workspace)
Innskráning
Tvær mismunandi leiðir:
Opnaðu PebblePad (PP) með því að smella á tengilinn til vinstri á upphafssíðu þjónustunámskeiðsins í Canvas
Slóð inn á PebblePad (PP): https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak
Ath. Sama notendanafn og lykilorð eins og í Uglu og önnur kerfi HA
Eyðublöð
Til að ná í eyðublað, smelltu á Resources. Þar má finna lista yfir eyðublöð.
Veldu viðeigandi eyðublað. Þar sem stendur Auto-Submit er nóg að vista skjalið, þar með fer skjalið á réttan stað í PebblePad.
Markmiðsblöð
Til að geta vistað þarftu að samþykkja skilmálana. Athugaðu að eitt markmið er skráð á eitt eyðublað -> tvö markmið – tvö markmiðsblöð.
Þegar eyðublaðið er vistað er því deilt sjálfkrafa (Auto-Submit) inn í skilgreindan hóp (set) í PebblePad
Hver hópur samanstendur af nemendum í sama leiðsagnarhópi, leiðbeinendum þeirra og leiðsagnarkennara
Leiðbeinendur og leiðsagnarkennari hafa þar með aðgengi að gögnum nemenda í hópnum á meðan á vettvangsnámi stendur
Fylltu eyðublaðið út samkvæmt leiðbeiningum, skráðu inn nafn og umbeðnar upplýsingar í efsta reitinn og vistar skjalið.
Þú for-vinnur markmiðin í vikunni áður en vettvangsnám hefst
Leiðbeinandinn hefur aðgengi að markmiðsblaðinu þegar það hefur verið vistað og getur því skoðað það áður en þú mætir á staðinn
Þú fullvinnur markmiðin í samráði við leiðbeinanda fyrir lok fyrstu viku á vettvangsnámsstað
Leiðbeinandi samþykkir námsmarkmið þín með undirskrift sinni fyrir lok fyrstu viku á vettvangsnámsstað. Ef gera á breytingar á markmiði skal það gert í samráði við leiðbeinanda og kvittað undir á nýjan leik.
Í stöðu- og lokamati eru námsmarkmiðin rædd
Leiðbeinandi merkir við á markmiðskvarðanum
Leiðbeinandinn verður að vera inni á sínum aðgangi til að geta merkt við á markmiðs-kvarðanum
Í kjölfar lokamats kvittar leiðbeinandi undir.
Athugið að við það læsist skjalið
Workspace
Til að ná í eyðublöðin sem er búið að vista þarf að smella á bláa hnöttinn (Atlas).
Veldu viðeigandi Workspace – það þjónustunámsskeið sem þú ert í. Þar undir finnur þú eyðublöðin þín.
2. hluti (Eyðublaðið: Mat á frammistöðu í vettvangsnámi)
Smelltu á Resources til þess að opna lista yfir eyðublöð.
Veldu viðeigandi eyðublað, þar sem stendur Auto-Submit er nóg að vista skjalið – þar með fer það á réttan stað í PebblePad.
Í viku 1 eða 2 sækir þú eyðublaðið Mat leiðbeinanda á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi.
Þú þarft að samþykkja skilmálana til að geta vistað eyðublaðið.
Fylltu út í efstu reitina samkvæmt fyrirmælum og vistaðu skjalið
Skjalið vistast sjálfkrafa (Auto-Submit) í rétt Workspace sem leiðbeinandi hefur aðgang að
Leiðbeinandi fyllir matið út
Nemandi og leiðbeinandi ræða matið í stöðu- og lokamati
Á fundi með leiðsagnakennara í kjölfar lokamats undirrita nemandi og leiðbeinandi matið.
Ath. Þegar leiðbeinandi skrifar undir læsist skjalið.
Skráðu nafn og umbeðnar upplýsingar í efsta reitinn og vistaðu skjalið.
Vandaðu útfyllingu eyðublaðsins og gættu þess að fara eftir leiðbeiningunum
Ræddu mat þitt á eigin frammistöðu við leiðbeinandann í stöðu- og lokamati
3. hluti (Eyðublöðin: Mat nemanda á reynslu úr vettvangsnámi og Aukamat á reynslu)
Eyðublaðið mat nemanda á reynslu
Þú nærð þér í og fyllir út eyðublaðið mat nemanda á reynslu úr vettvangsnám fyrir lokamat.
Í lokamati ræðir þú mat þitt við leiðbeinandann.
Smelltu á Resources til að fá lista yfir eyðublöð.
Veldu eyðublaðið Mat nemanda á reynslu úr vettvangsnámi.
Mat nemanda á reynslu úr vettvangsnámi
Þú fyllir matið út samkvæmt fyrirmælum
Vistaðu skjalið
Þú deilir matinu með leiðbeinanda fyrir lokamat
Eyðublaðinu deilt með leiðbeinanda
Veldu I want to og smelltu á Share.
Veldu With people.
Skráðu netfang leiðbeinanda þíns og smelltu síðan á Close.
4. hluti (Eyðublöðin: Aukamat á reynslu nemanda á vettvangi)
Aukamat á reynslu úr vettvangsnámi
Ef það er eitthvað sem tengist reynslu þinni á vettvangsnámsstað og þú vilt einungis koma á framfæri við skólann þá hefur þú kost á að fylla út eyðublaðið aukamat á reynslu úr vettvangsnámi
Eyðublað sem vistað er á svæði í PebblePad sem verkefnastjóri vettvangsnáms hefur umsjón með
Veldu Resources eins og smelltu á AukaMat nemanda a reynslu ur vettvangsnami.
Þú þarft að samþykkja skilmálana til að geta vistað eyðublaðið.
Fylltu út í reitina samkvæmt fyrirmælum og vistaðu skjalið.
Skjalið vistast sjálfkrafa (Auto-Submit) í rétt Workspace sem verkefnastjóri vettvangsnáms hefur umsjón með.
Skila verkefni í PebblePad, inn í Workspace (Canvas)
Skráðu þig inn á Canvas.
Opnaðu námskeiðið sem verkefnið er í.
Smelltu á PebblePad.
Þá opnast PebblePad, smelltu núna á Assets.
Veldu verkefnið sem á að skila.
Þegar verkefnið opnast, smelltu á I want to...
Þá opnast felligluggi, veldu Share.
Núna þarf að velja For assesment: So my assets can receive feedback.
Smelltu á námskeiðið sem verkefnið er í.
Gefðu leyfi til að deila verkefninu til yfirferðar, smelltu síðan á Share for assessment.
Vettvangsnám fyrir iðjuþjálfunarfræði
Skráði þig inn á Canvas.
Smelltu á Skjáborð og veldu námskeiðið Vettvangsnám í Iðjuþjálfunarfræði.
Smelltu næst á PebblePad.
Smelltu næst á Resources.
Undir Resources, smelltu á IDJ skraning i vettvangsnam.
Fylltu út skjalið með nafni og dagsetningum.
Skráðu inn tímafjölda og smelltu á Add Signature.
Fáðu nafn, tölvupóst og undirskrift hjá móttökuaðila. Smelltu síðan á Confirm signature þegar allt er komið inn.
Þá opnast nýr gluggi, þar sem beðið eru um að staðfesta skjalið.
Smelltu núna á táknmyndina sem er staðsett efst í hægra horninu.
Smelltu á I want to...
Smelltu á Share.
Veldu For assessment.
Veldu síðan Vettvangsnám í Iðjuþjálfunarfræði.
Samþykktu notkunarskilmála, með því að haka í kassa. Smelltu síðan á Share for assessment.