Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 37 Current »

Panopto er upptökukerfi háskólans og er uppsett á tölvum í kennslutölvum en einnig getur starfsfólk sett upp Panopto á sínar eigin vélar í gegnum Sjálfsafgreiðsla hugbúnaðar .
Hægt er að nálgast upptökur fyrir hvern og einn kúrs í gegnum Canvas, en einnig er hægt að sjá allar upptökur sem maður hefur aðgang að, í gegnum upptaka.unak.is .

 Skoða áhorf á upptökum


Skoða áhorf á námskeiði

Til að skoða áhorf fyrir allt námskeiðið, smelltu á Stats sem er efst í hægra horninu.


Þá opnast nýr gluggi, hér er hægt að skoða áhorfstölurnar á upptökunni.

Hægt ert að skoða áhorf með eftir farandi leitarskilyrðum:

  • Síðasta sólarhring

  • Síðustu viku

  • Síðasta mánuð

  • Frá upphafi

  • Velja sérstak tímabil til að skoða


Skoða áhorf á einni upptöku

Ef þú vilt skoða áhorf fyrir eina upptöku, smelltu á Stats við upptökuna.



Þá opnast nýr gluggi, þar sem hægt er að skoða áhorfin yfir allar upptökur í námskeiðinu.

Hægt ert að skoða áhorf með eftir farandi leitarskilyrðum:

  • Síðasta sólarhring

  • Síðustu viku

  • Síðasta mánuð

  • Frá upphafi

  • Velja sérstak tímabil til að skoða

Grafið sýnir fjölda áhorfa, hversu margar mínútur er búið að horfa á og tímastimpil á þeim tíma sem horft var á.

Fyrir neðan er svo listi yfir top hundrað upptökur í námskeiðinu. Auk þess að sýna eftirfarandi upplýsingar.

  • Áhorf

  • Hvað er búið á horfa á mikið í heild (mínútur)

  • Hvað er búið að horfa á mikið í meðaltali (mínútur)

  • Einstakir notendur

Til að niðurhala upplýsingum um áhorfið, skrunaði þá neðst á síðunni og veldu hvað þú vilt ná í.

 Fara inn á heimasvæðið

Canvas

Opnaðu námskeið í Canvas, smelltu á Panopto og smelltu á kassann í hægra horninu.

Nú ertu komin/nn á heimasvæði þitt á Panopto.

Heimasíða

Farðu inn á síðuna upptaka.unak.is.


Smelltu á efsta gluggann og veldu Canvas


Smelltu á Sign in.

Canvas innskráning: Smelltu á Innskráning á þeim stað sem á við, settu in notendanafn þitt og lykilorð og smelltu á Sign in/Innskráning


Nemendur og starfsfólk HA


Stundakennarar sem eru ekki með @unak.is netfang


Símenntun Háskólans á Akureyri


Nú ertu komin/nn á heimasvæði þitt á Panopto.





 Færa, afrita eða eyða upptöku

Klippa upptöku í Panopto

Byrjaðu á því að finna efnið sem þú ætlar að klippa, smelltu á Edit til að hefja klippingu. Gott er að hafa í huga að klippiforritið er NDE (e. non destructive editor), sem þýðir að það er alltaf hægt að afturvirkja klippingu. 


Þá opnast nýr gluggi og nú er hægt að byrja að vinna í upptökunni.


Finndu hlutann  sem þú vilt klippa út úr fyrirlestrinum. Vinstri smelltu með músinni og dragðu músina yfir þann part sem þú vilt losna við. Þá kemur svona grátt svæði yfir þann hluta sem þú valdir. Til þess að losa sig við klippinguna þá þarf aðeins að hægri smella á flipann og draga gráa svæðið saman.


Þegar búið er að klippa efnið í burtu, þá þarf að smella á Publish til að staðfesta klippinguna. 


Bæta efni inn í upptöku (e. Add content)

Hægt er að bæta efni inn í upptökur á Panopto. Það er gert með því að smella á plús merkið og þá opnast gluggi með öllum möguleikunum. Hér fyrir neðan eru síðan leiðbeiningar um hvert atriði.


Hafðu í huga að staðsetning nálarinnar á tímalínunni, rauða línan á myndinni fyrir neðan, sýnir hvar efnið mun koma í upptökuni.

Bæta við streymi (e. Add a stream)

Hægt er að setja inn myndbands klippu úr tölvunni og ákveðnar tegundur af skjölum, t.d. pdf, powerpoint mp4 og fleira, inn í upptökuna. Hafðu í huga að efnið fer á þann stað í upptökunni þar sem nálin er á tímalínunni.


Þegar smellt er á Upload primary audio or video, þá opnast nýr gluggi þar sem þú velur hvað á að fara inn í upptökuna og smellir síðan á Open. 


Athugið að stærð upptöku hefur áhrif á hversu langan tíma það tekur að hlaða henni inn.


Þegar smellt er á Upload secondary video or Powerpoint þá opnast eins glyggi og birtist hér að ofan. Finndu skjalið sem þú vilt bæta við og smelltu síðan á Open.


Athugið að stærðin á skjalinu hefur áhrif á hversu langan tíma það tekur að hlaða henni inn.


Bæta við annarri Panopto upptöku (e. add a clip)

Þegar smellt er á Add a clip, þá opnast nýr gluggi þar sem hægt er að leita að þeirri Panopto upptöku sem þú vilt bæta við. Aðeins er hægt að velja eina upptökur í einu. Þegar upptaka er valin þá smellir þú á Insert, þá hleðst upptakan inn á þann stað sem nálin var á tímalínunni.

Ef þú vilt breyta staðsetningu á upptökunni, farðu þá í Contents, finndu upptökuna, færðu músina yfir hana, smelltu á punktana þrjá og veldu Edit. Ef þú vilt eyða upptökunni þá smellir þú á Delete.


Hér getur þú valið hvenær nýja upptakan á að spilast, smelltu á Save til að vista breytingarnar.


Búa til próf í upptöku (Add a quiz)

Þegar smellt er á Add a quiz þá opnast nýr gluggi, þar sem prófið er búið til. 



Hægt er að breyta tegundum á spurningum með því að smella á svæðið þar sem stendur núna Multiple Choice. Þá opnast flettigluggi þar sem hægt er að velja á milli rétt eða rangt- og tvær tegundur af fjölvals spurningum. Til að bæta við svarmöguleikum þá smellir þú á Add answer...





Öll próf eru búin til á sama máta. Þú byrjar á því að búa til spurningina, síðan svörin og velur hvaða er rétt svar. Einnig er hægt að bæta við útskýringa texta við rétta svarið. Til að bæta við annarri spurningu við prófið, þá smellir þú á Add a Question. Annars þá smellir þú á Done.


Þegar smellt er á Done þá opnast nýr gluggi með upplýsingum um prófið og stillingum sem hægt er að breyta.

Hægt er að ákveða nýja tímasetningu/staðsetningu á prófinu í upptökunni með því að breyta tímanum í Quiz Position. Einnig er hægt að ákveða hvort nemendur geti tekið prófið oftar en einu sinni (e. Allow viewers to retake this quiz), sýna nemendum einkunn eftir að hafa þreytt prófið (e. Show grade after taking this quiz) og leyfa nemendum að skoða rétt svö og útskýringar (e. Allow review of correct answers and explanations).  Auk þess er hægt að koma í veg fyrir að nemendur geti haldið áfram að horfa á upptökuna, nema að þú taki prófið og nái því (e. Block advancing in the video until answering this quiz). Ef það eru margar spurningar í prófinu þá er hægt að breyta staðsetningum þeirra með því að smella á örvarnar sem eru til hliðar við spurninguna. Til að klára uppsetingu á prófinu þá smellir þú á Finish.


Setja YouTube myndband í upptöku (e. Add a YouTube video)

Til þess að setja YouTube myndband inn í upptökuna þá þarftu fyrst að afrita hlekk af myndbandinu. Settu síðan hlekkinn í gluggann þar sem stendur Link. Hægt er að stilla hvenær myndbandið á að spilast í upptökunni í glugganum þar sem stendur Time. Hægt er að stilla hvort það eigi að spila eitthvað ákveðið tímabil í YouTube myndbandinu, það er gert með því að setja inn upphafstíma (e. Start) og lokatíma (e. End). Einnig er hægt að ákveða hvort það eigi að sýna stillingar á myndbandinu (e. Show YouTube controls) og hvort myndandið eigi að spilast að sjálfu sér (e. Autoplay). Loks smellir þú á Done til að klára að setja myndbandið inn.



Setja heimasíðu inn í upptöku (e. Add a webpage)

Hægt er að setja heimasíðu inn í upptöku, þannig að hægt sé að vafra inn á síðunni inn í upptökunni. Gefðu síðunni nafn, svo hún birtist í kafla skiptingunni (e. Table of Contents) í Panopto. Þú getur breytt hvenær vefsíðan á að birtast í upptökunni (e. Time) og ákveðið á hvaða tímalínu síðan á að birtast (e. Stream). Búðu til leitarorð fyrir síðuna svo hægt sé að leita að henni í upptökunni (e. Search keywords). Afritaðu hlekkinn af heimasíðunni og settu hann í https:// gluggann (e. Link), smelltu svo á Save.



Nú er hægt að vafra á heimasíðunni, inn í upptökunni.




 Ná í Panopto

Opnaðu Canvas síðu námskeiðsins, farðu inn á Panopto og smelltu á Create

Þá opnast gluggi með lista yfir útgáfur fyrir Panopto. Ef þú ert með Windwos stýrikerfi, smelltu á Windows táknmyndina. En ef þú ert með Apple stýrikerfi, smelltu á OS táknmyndina. Fyrir Windows notendur er nóg að smella á 32-bit útgáfuna. Apple notendur þurfa að ná í útgáfu sem passar við útgáfuna á því stýrikerfi sem þeir eru að nota. Ef stýrikerfið er reglulega uppfært, smelltu þá á OS X 10.9 and up.

Þegar tölvan er búin að ná í kerfið, smelltu á skránna til að hefja uppsetningu.


Hér þarf ekkert að breyta, smelltu því á Next.

Smelltu svo á Install til að hefja uppsetningu.

Þegar uppsetning er klár, þá opnast Panopto forritið þar sem þú getur skráð þig inn.

 Stillingar á upptöku

Smelltu á tannhjólið til að fara í stillingar á fyrirlestrinum.


Þegar þessi gluggi kemur upp, skrollaðu alveg niður.


Hér er hægt að stilla hvenær upptakan á að vera aðgengileg fyrir nemendur.


Breyta stillingum á upptöku (e. Overview)

Breyta stillingum á upptöku (e. Outputs)

 Deila upptöku

Færðu músina yfir myndbandið, þá birtast fimm tákn sem hægt er að smella á. Smelltu á deila, e.share, táknið.

Efst uppi eru tvær tegundir af hlekkjum sem hægt er að afrita og deila með öðrum. Þar fyrir neðan eru stillingar á því hver hefur aðgang að upptökunni, e.Who has access. Smelltu á örina, sem er staðsett í grá kassanum, e.Specific people.

Þegar smellt er á örina þá koma fleiri valmöguleikar á því hverjir hafa aðgang að upptökunni. Ef upptakan á að vera aðgengileg aðilum innan, starfsfólki og nemendum, þá er mælt með að velja Anyone at your organization with the link. En það þýðir að allir með HA netfang hafa aðgang að upptökunni, en þurfa að hafa hlekkinn að upptökunni. Ef upptakan á að vera aðgengileg fyrir aðila utan háskólans, þá þarf að velja Anyone with the link.

Einnig er hægt að bjóða fólki að hafa aðgang að upptökunni. Smelltu á reitinn fyrir neðan Invite people og ritaður póstfangið hjá þeim aðila sem þú vilt bjóða aðgang að upptökunni. Ef aðilinn er með HA netfang, þá er hægt að skrifa nafnið á viðkomandi. Smelltu síðan á nafnið til að gefa aðilanum aðgang að upptökunni.

Þegar búið að er að velja þann sem á að deila upptökunni með, þá þarf að smella á Send and Save changes. 


 Hlaða inn upptöku

Hlaða upptöku inn á Canvas

Opnaðu Panopto í námskeiðinu sem upptaka á að vera. Smelltu á Create og veldu Upload media.

Dragðu upptökuna inn á svæðið eða smelltu á táknið til að opna möppu í tölvunni til að byrja að hlaða upptökunni inn.

Panopto lætur vita þegar upptakan er komin inn og þegar má loka þessum glugga.

Upptakan er núna komin inn í Panopto möppu námskeiðs og verður aðgengileg nemendum innan skamms.

Hlaða upptöku inn á upptaka.unak.is

 Leita að upptöku
 Panopto í macOS

Fyrst þarf að Ná í Panopto upptökukerfið

Skráðu þig inn á Panopto.

Smelltu á Open System Preferences.

Hér þarf að gefa Panopto leyfi til að taka upp skjáinn og nota hljóðnemann í tölvunni. Smelltu á Change Security & Privacy Preferences.

Hakaðu við Panopto og smelltu á lásinn, neðst vinstra megin, til að vista breytingarnar.

Smelltu á Create New Recording.

Hér þarf að vilja í hvaða möppu á að taka upp í og gefa upptökunni heiti. Hægt er að taka upp bæði PowerPoint- og Keynote kynningu. Smelltu á Record til að hefja upptöku.


Þegar upptaka er í gangi getur þú stoppað hana og ýtt á pásu.

User-added image

Þegar upptaka er stöðvuð þá birtist gluggi með nafninu á upptökunni. Smelltu á Upload til að hlaða upptökunni inn á Panopto. Einnig er hægt að smella á Delete and record again ef þú vilt eyða upptökunni og byrja aftur.

Þegar smellt er á Upload þá hleður forritið upptökunni inn á Panopto.

 Fara inn á heimasvæði í gegnum upptökuforrit



 Sýsla með möppur
 Notkun á Panopto í upptöku

Farðu inn í Canvas til að hefja upptöku í Panopto. Smelltu á Create of veldu Panopto for Windows til að kveikja á upptökuforritinu.

Svona lítur Panopto út þegar upptökukerfið fer í gangí.



Smelltu á gluggann í Folder til að velja í hvaða námskeið upptakan á að fara í.

Mælt er með að gefa upptökunni sérheiti.


Aðal stillingar (e. Primary Sources)

Hægt er að bæta vefmyndavél við upptöku (e. Video)

Mikilvægt er að velja réttan hljóðnema áður en upptaka fer af stað (e. Audio)

Mælt er með að gæðin séu stillt á High (e. Quality)

Hakaðu í Capture Computer Audio til að taka upp hljóð úr tölvunin, t.d. hljóð úr myndbandi sem er spilað í upptöku.

Þegar vefmyndavélin er valin, þá verður kemur upp sýnishorn af henni í glugga fyrir ofan Video og hljóðstyrks mælirinn færist til hliðar.


Þegar línan á hljóðstyrks mælinum hreyfist, þá er hljóð að berast inn í upptökuna. Mikilvægt er að hefja ekki upptöku ef þessi lína hreyfist ekki. Einnig þarf að passa að línan fari ekki á rauða svæðið.


Mikilvægt er að velja Capture PowerPoint til að taka upp glærusýinguna og Capture Main Screen til að taka upp skjáinn á tölvunni. Einnig er hægt að bæta við upptöku á auka skjá og vefmyndavélum, ef búnaðurinn er tengdur við tölvuna. 


Mælt er með stillingunum hér að neðan í upplausn á upptökunni. Muna að smella á Apply, til að staðfesta breytingarnar.

Hér sést hvað er verið að taka upp, hægt er að smella á Open a Presentation til að velja PowerPoint.

Til að athuga hvaða skjá er verið að taka upp, þá er hægt að haka í Enable screen capture preview til að skoða hvaða skjár er í upptöku.


Til að hefja upptöku, þá þarf að smella á Record. Þegar upptaka er í gangi þá breytist Record hnappurinn yfir í Stop og Pause. Til að stöðva upptökur, smelltu þá á Stop. Til að gera pásu á upptöku, smelltu þá á Pause.


Flýtileiðir fyrir upptöku

Taka upp (Record): F8

Pása (Pause): F9

Stöðva upptöku (Stop): F10


Nú þegar lítið eða ekkert hljóð berst úr hljóðnemanum í upptökukerfið, þá kemur upp viðvörun neðst í vinstra horninu á skjánum/glærukynningunni.


Þegar upptaka er stöðvuð þá kemur upp sprettigluggi sem biður þig um að staðfesta upptökuna með því að hlaða henni upp (e. Upload) eða eyða henni og taka aftur upp (e. Delete and record again). Einnig er hægt að breyta nafninu á upptökunni.


Þegar smellt er á Upload þá opnast annar gluggi (e. Manage Recordings), þar sem hægt er að sjá lista yfir þær upptökur sem notandi hefur tekið upp í tilheyrandi tölvu. Hér má slökkva á forritinu.


 Virkja ljósbendil á mús í upptöku

Opnaðu Panopto, smelltu á Settings, hakaðu við Highlight the mouse cursor during screen capture og smelltu síðan á Save.

 Setja upptöku inn í aðra upptöku

Veldu svæðið sem þú vilt setja inn í upptökuna.


Smelltu á Plús merkið og veldu Add a clip.


Veldu upptöku númer 2 sem þú vilt bæta við, smelltu síðan á Insert.


Þá er upptaka númer 2 komin inn. Mun svo að smella á Publish til að vista og birta upptökuna.

 Breyta aðgangstillingum á upptökum

Farðu inn á http://upptaka.unak.is og skráðu þig inn.


Smelltu á Browse til að leita að námskeiðinu sem á að breyta aðgangs stillingunum. Þegar þú hefur fundið námskeiðið, smelltu á það til að opna möppuna sem hýsir upptökurnar.


Þegar búið er að opna möppuna sem hýsir upptökurnar, smelltu næst á  táknið sem er staðsett efst í hægra horninu.


Þá opnast nýr gluggi, smelltu á Who has access og veldu Anyone with the link.


Smelltu næst á Save changes til að vista breytingarnar.


Núna eru allar upptökur í þessari möppu aðgengilegar með þeim sem þú deilir hlekk af möppunni eða upptökunum. Til að deila hlekk að allri möppunni þá þarf að afrita hlekkinn og líma hann á Canvas.


Til þess að deila hlekk að einni upptöku, færðu músina yfir upptökuna og smelltu á Share.


Smelltu á Who has access og veldu Anyone with a link.


Smelltu á Save changes til að vista breytingarnar.

 Eyða streymi úr upptöku

Notað þegar vefmyndavél eða skjáupptaka er óvart tekið upp í Panopto.

ATH. Þegar streymið hefur verið eytt er ekki hægt að nálgast það aftur.

Finndu upptökuna sem á að eyða út streyminu og smelltu á Settings.


Smelltu næst á Streams.


Færðu músabendilinn yfir streymið og smelltu á x (Delete) til að eyða því út.
[DV] stendur fyrir vefmyndvél og [SCREEN] er skjáupptakan.


 Efni deilt með þér
 Leiðbeiningar á PDF

Í kennslustofum

 Vandamál með Panopto

Ef þú lendir í vandamálum með Panopto, t.d. hökt í spilun þá er ráð að prófa að eyða út uppsöfnuðum upplýsingum úr vefskoðurum (e. Clear browsing data)

Sjá leiðbeiningar hér: Hreinsa vafra (Cache and Cookies)

  • No labels