Hægt er að senda rafræna aðstoðarbeiðni á deildina með því að fara á https://hjalp.unak.is/ og skrá sig inn og velja þar viðeigandi tegund beiðnar. Starfsfólk KHA verður svo í sambandi í gegnum beiðnakerfið varðandi úrlausn beiðnarinnar. Beiðnakerfið sendir þér tölvupóst um leið og svar berst svo ekki er sérstök þörf á að vakta beiðnakerfið.
How to put in a service request?
|
KHA rekur þjónustuborð í sama rými og Nemendaskrá HA á fyrstu hæð A álmu (til hægri inn ganginn þegar komið er inn um aðalinngang skólans). Þangað er sjálfsagt að koma og fá aðstoð tæknifólks við vandamál sem koma upp. Þjónustuborðið er opið alla virka daga milli 08:00-16:00 |
Tæknifólk KHA svarar í þjónustusíma 4608070 á skrifstofutíma. Æskilegt er að mál sem þangað berast séu það brýn að þau þoli ekki að fara í gegnum beiðnakerfið. |