Ég skráði mig inn á sameiginlega tölvu og get ekki skráð mig út. Hvað get ég gert?
Það er mikilvægt að notendur skrái sig aldrei inn í hugbúnað eins og til dæmis Teams, OneDrive, Outlook, Word og Powerpoint sem dæmi nema á sínum eigin aðgangi á tölvunni þar sem stýrikerfi tölvunnar getur vistað aðganginn. Það þýðir að hver sem skráir sig inn á þeim aðgangi sem var innskráður getur farið inn á Teams svæði, tölvupóst, gögn og annað sem tilheyrir notandanum sem skráði sig inn. Þess vegna bendum við notendum á að opna huliðsglugga í vafrara og fara þannig inn á ugla.unak.is til þess að komast inn á þeirra svæði.
Ef notandi hefur hins vegar skráð sig inn fyrir slysni, þá skal fylgja þessum leiðbeiningum:
Smella á leitargluggann í windows stýrikerfinu og skrifa “Work or school”. Valmöguleikinn “Work or school users” ætti að birtast í listanum. Smellið á hann
Finnið notendanafnið ykkar í listanum, smellið á örina niður og veljið “Remove”
Nú hafið þið eytt aðgangsupplýsingunum ykkar úr stýrikerfinu. Ef þið hafið hlaðið niður skrám eða skráð ykkur inn á OneDrive, þá þurfið þið að finna þær skrár og eyða þeim handvirkt. Einnig mælum við með því að hreinsa skyndiminni vafrara með því að fylgja þessum leiðbeiningum