Tækniaðstoð
Kennslumiðstöð býður upp á tækniaðstoð á opnunartíma sem er 8-16 virka daga. Ef óskað er eftir viðveru tæknifólks eða stuttu viðbragði þá má setja tímalega inn beiðni á hjálparsíðu Háskólans, hjalp.unak.is, en að öðru leiti er hægt að hringja í þjónustuborð í síma 460-8070 og óska eftir aðstoð ef þess gerist þörf.
Kennslumiðstöð getur útbúið hlekki fyrir streymi og stofnað svokallaða Webinar fundi þar sem almenningur hefur ekki möguleikann á að kveikja á hljóðnema eða myndavél hvenær sem er. Þetta form er mjög hentugt þar sem það kemur í veg fyrir allar truflanir sem geta orðið af þeim sem ekki eru á staðnum.
Ef ráðstefnan er utan almenns opnunartíma þá þarf að ræða það sérstaklega við Kennslumiðstöð þar sem kostnaður verður af yfirvinnu og manna þarf sérstaklega þann tíma.