Menntaský – Innskráning í vefviðmót Microsoft 365
Hér sérðu hvernig þú skráir þig inn í vefviðmót Microsoft 365 með Menntaskýs aðgangi og hvað þú getur prófað ef innskráning tekst ekki.
Áður en þú byrjar
Hafðu skólanetfang og lykilorð við höndina.
Vertu með símann þinn til að staðfesta tveggja þátta auðkenningu (2FA).
Slóðir fyrir innskráningu
Einnig er hægt að skrá sig inn á portal.office.com en til að komast í öll forrit þarf þá að smella á Apps í stikunni vinstra megin til að komast í öll forritin:
Skráðu þig inn
Opnað vafra og skráðu þig inn á 365.unak.is eða office.unak.is.
Sláðu inn skólanetfangið þitt og smelltu á Next.
Sláðu inn lykilorðið og smelltu á Sign in.
Samþykktu tveggja þátta auðkenningu (t.d. í Microsoft Authenticator eða með SMS).