Grábrók - Taka upp hlaðvarp

Grábrók - Taka upp hlaðvarp

Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú undirbýrð búnað í podcastklefanum Grábrók, skráir þig inn á Borg Hlaðvörp og tekur upp og að lokum hvernig þú gengur frá og skráir þig út. Upptökur verða svo aðgengilegar innskráðum notanda inni á borg.unak.is/studio/podcasts.

Áður en þú skráir þig inn í Borg Hlaðvörp þarftu að hafa skráð þig að minnsta kosti einu sinni inn á borg.unak.is.

Búnaður í klefanum

  • 2 hljóðnemar

  • Mixer

  • Tölva

  • 2 stólar og borð

IMG_20260120_154817.jpg

📘 Leiðbeiningar

Skref 1: Kveikja á búnaði

  1. Kveiktu á ljósum, rofarnir vinstramegin við inngang.

    rofar.JPG
  • Hægt er að dimma ljós með því að halda ljósarofanum inni.

  1. Kveiktu á upptökuljósi og viftu með tökkunum við hliðina á mixer.

    IMG_20260120_154528.jpg
  • Viftan slekkur sjálfkrafa á sér eftir 60 mínútur. Ýtið aftur á takkann til að kveikja á henni.

  1. Settu sleða 1 upp (appelsínugult ljós) til að nota appelsínugula hljóðnemann og sleða 2 upp (grænt ljós) til að nota græna hljóðnemann.

    image-20260121-102835.png
  2. Stilltu hljóðnemana þannig að þeir séu í um það bil eina lófafjarlægð frá munni (ca. 10 cm).

Athugaðu hvort grænu línurnar á mixernu hreyfast þegar talað er í hljóðnemana áður en þú byrjar upptökuna.

Skref 2: Innskráning á Borg Hlaðvörp

  1. Skráðu þig inn á Borg Hlaðvörp í tölvunni með Menntaskýs aðganginum þínum og smelltu á Halda áfram takkann:

    image-20260120-131544.png

 

Skref 3: Upptaka

  1. Gefðu upptökunni nafn og smelltu á Byrja upptöku:

image-20260120-132601.png

Upptaka er hafin þegar þessi teljari fer í gang og nú er þér frjálst að tala um allt og ekkert:

image-20260120-132744.png
  1. Smelltu á Stöðva upptöku til að hætta:

image-20260120-133128.png
  1. Ef upphleðsla tekst birtist þessi gluggi og þú getur hlaðið upptökunni niður á þínu svæði inna á borg.unak.is/studio/podcasts.

  2. image-20260120-140444.png

    Þegar upptöku er lokið er boðið upp á taka aðra upptöku.

    image-20260120-140717.png

Ef villa kemur við upphleðslu er líklegt að notandi hafi ekki skráð sig inn á borg.unak.is áður eða rangt notendanafn, sjá algengar spurningar.

image-20260120-141704.png

Skref 4: Frágangur

Dragðu sleða niður á mixer.
Slökktu á upptökuljósi (slökkt er á ljósi í rofa þegar sllökkt er á upptökuljósi).
Slökktu á loftljósum.
Ekki þarf að slökkva á tölvu, mixer eða viftu.
Taka allt rusl og henda.
Ýtu á aflæsingartakka (UNLOCK DOOR) við hurðina áður en opnað er.
Lokaðu dyrinni að lokinni notkunn.

 

Algengar spurningar

Til að bóka Grábrók þarf að…

Starfsfólk:

Nemendur:

Ef þú hefur gleymt að skrá þig inn á borg.unak.is áður en upptaka hófst skaltu skrá þig þar inn og smella svo á appelsínugula upphleðslu takkan til að hlaða henni upp aftur:

image-20260120-142416.png

Ef þú skráðir rangt notandnafn og sérð ekki upptökuna inni á borg.unak.is skaltu hafa strax samband við Þjónustuborð KHA til að nálgast upptökuna. Einungis er hægt að bjarga upptökum sama dag og þær eru gerðar en allar upptökur eyðast út tölvunni á miðnætti.

Allar upptökur í Grábrók eyðast á miðnætti!

Ef innskráningargluggi sést ekki þarf að endurræsa tölvuna.

image-20260120-145648.png

 

Þú þarft ekki að breyta neinum stillingum í mixernum. Ef þú telur að stillingum hafi verið breytt, hafðu samband við Þjónustuborð KHA og biddu þau um að endurstilla stillingar.

 Tengdar síður



Filter by label

There are no items with the selected labels at this time.