Panopto - Tiltekt á eldra efni
Í apríl ár hvert er öllum upptökum í námskeiðsmöppum sem eru eldri en 3 ára eytt úr Panopto.
Á hverju ári framkvæmum við “vorhreingerningu” í Panopto-kerfinu til að halda kerfinu skilvirku, minnka óþarfa geymslukostnað og tryggja að aðeins virkt efni sé til staðar.
Hvað þarf þú að gera?
Ef þú átt upptökur í eldri möppum sem þú vilt halda áfram að nota, þarftu að færa þær fyrir 1. apríl.
Ef þú ert ekki lengur að nota þetta gamla efni þarftu ekki að gera neitt, KHA sér um að eyða efninu úr námskeiðsmöppum þegar fresturinn er liðinn.
📘 Flytja eða afrita upptöku
Opnaðu Námskeið > Öll námskeið í Canvas og smelltu á námskeiðið með efninu sem á að flytja.
Smelltu á Panopto í vinstri valmynd.
Smelltu á Open in Panopto efst til hægri.
Merktu við upptökuna með því að haka í reitinn efst til vinstri á henni. Þú getur merkt við margar upptökur í einu.
Smelltu á Move til að færa upptökuna.
Veldu áfangastað (t.d. annað námskeið eða My Folder) og smelltu á Move til að staðfesta.
Afritun getur tekið 20–30 mínútur áður en upptakan birtist í nýja námskeiðinu.