Safe Exame Browser (SEB)
Á þessari síðu finnur þú leiðbeiningar um hvernig á að setja upp, opna og nota Safe Exam Browser þegar þú tekur próf.
Safe Exam Browser (SEB) er sérhæfður vafri sem er notaður til að tryggja öruggt prófumhverfi í rafrænum prófum. Með SEB er aðgangur að öðrum forritum og vefsíðum takmarkaður meðan próf stendur yfir.
Þú verður að hlaða niður réttri útgáfu af Safe Exam Browser beint úr prufuprófi í Inspera, annars gæti prófið ekki opnast.