Panopto – Flytja eða afrita upptöku milli námskeiða

Panopto – Flytja eða afrita upptöku milli námskeiða

Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú flytur eða afritar Panopto upptöku úr einu Canvas námskeiði í annað. Þú getur annaðhvort fært upptökuna eða búið til afrit ef hún á að vera sýnileg í fleiri en einu námskeiði.

Þegar þú notar Move hverfur upptakan úr upprunalega námskeiðinu.
Þegar þú notar Copy verður til tilvísunareintak í nýja námskeiðinu.

 

📘 Flytja eða afrita upptöku

  1. Opnaðu Námskeið > Öll námskeið í Canvas og smelltu á námskeiðið með efninu sem á að flytja.

    image-20260323-152808.png

     

  2. Smelltu á Panopto í vinstri valmynd.

    image-20260323-153024.png

     

  3. Smelltu á Open in Panopto efst til hægri.

    image-20260323-151203.png

     

  4. Merktu við upptökuna með því að haka í reitinn efst til vinstri á henni. Þú getur merkt við margar upptökur í einu.

    image-20260323-151504.png

     

  5. Smelltu á Move til að færa upptökuna eða Copy til að búa til tilvísunareintak:

    image-20260323-151633.png

     

  6. Veldu áfangastað (annað námskeið eða My Folder) og smelltu á Move eða Copy til að staðfesta.

    image-20260323-152044.png

Afritun getur tekið 20–30 mínútur áður en upptakan birtist í nýja námskeiðinu.