Canvas – Stilla aukatíma í Ný próf/kannanir (e. New Quizzes)
Þessar leiðbeiningar sýna þér hvernig þú bætir við aukatíma hjá nemanda í prófi sem búið er til með New Quizzes í Canvas. Hægt er að stilla aukatíma á eitt tiltekið próf eða að stilla aukatíma sem gildir sjálfkrafa fyrir öll New Quizzes í námskeiðinu. Mundu að þegar próftökutíminn er afmarkaður eins og t.d. þegar próf er tekið á símatsdegi þarf að lengja aðgengið að prófinu svo aukatíminn nýtist að fullu.
Áður en þú byrjar þarf prófið að vera birt (Published) og hafa virk tímamörk (e. Time Limit). Ef engin tímamörk eru á prófinu er ekkert til að lengja.
Þú þekkir prófategundina á eldflaugartákninu vinstra megin við heiti prófsins.
Fyllt eldflaug merkir Ný próf/kannanir (e. New Quizzes);
Útlínueldflaug merkir Sígilt próf (e. Classic Quizzes).
Stilla aukatíma nemenda í New Quizzes
Opnaðu námskeiðið í Canvas.
Veldu Próf (e. Quizzes) í vinstri valmynd námskeiðsins.
Smelltu á þrjá punktana við prófið og veldu Byggja (e. Build).
Veldu flipann Stjórna (e. Moderate).
Hægt er að stilla aukatíma á eitt tiltekið próf eða að stilla aukatíma sem gildir sjálfkrafa fyrir öll New Quizzes í námskeiðin.
Aukaskref ef próftökutíminn er afmarkaður t.d lokapróf og próf á símatsdegi
Ef próf/könnun er aðeins aðgengileg á fyrir fram ákveðnum tíma t.d. á símatsdegi og nemendur hafa því ekki val um hvenær verkefnið er tekið þarf að fylgja eftirfarandi skrefum til að tryggja að nemendur með aukatíma geti nýtt hann. Mikilvægt er að kennari átta sig á muninum á Tímamörkum og Þar til lokunartíma.
Tímamörk (e. Time Limit) er niðurtalning sem byrjar þegar nemandinn opnar prófið og ræður hve lengi hann má vinna. Aukatíminn lengir þessa niðurtalningu sjálfkrafa. Nemandi getur skilað prófinu hvenær sem er innan tímamarkanna, en ef hann skilar ekki sjálfur verður prófinu skilað sjálfkrafa þegar tímamörkin renna út.
Hægt er að stilla Tímamörk með því að smella á þrjá punktana við prófið, velja Byggja og fara í Stillingar flipann:
Þegar smellt er á próf er hægt að stilla þrjár tímasetningar undir Úthluta aðgangi:
Skiladagur (e. Due) merkir aðeins skil sem „of sein“ og lokar ekki á nemandann.
Tiltækt frá (e. Available From) er tíminn sem nemendur geta opnað prófið, fyrir þann tíma er prófið læst.
Þar til (e. Until) er fastur lokunartími. Þegar hann rennur upp er prófið sent inn sjálfkrafa, jafnvel þótt aukatími sé ekki búin. Gæta þarf að því að nemendur með aukatíma fá seinni lokunartíma en aðrir.
Smelltu á prófið sem þú varst að stilla.
Undir Úthluta aðgangi skaltu smella á +Úthluta til
Stilltu Þar til tíma þannig að lengsti aukatími nemandi rúmist innan tímamarka prófsins. Í þessu dæmi er lengsti aukatíminn 15 mínútur og því er lokatími prófsins lengdur um 15 mínútur.
Veldu alla nemendur sem fá sama aukatíma undir Úthluta til.
Smelltu á Vista.
Hægt er að endurtaka skref 6-9 ef sérstilla þarf próftíma fyrir aðra nemendur.