Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Í kennslan mín í Uglu smellir þú á Inspera táknið (sjá svarta ör).
Image RemovedImage Added


Hér sérðu lista yfir öll Inspera próf í námskeiðinu – Til þess að skoða prófið í Inspera smellir þú á kassann með ör uppúr (sjá gula).
Image RemovedImage Added


Nú opnast Inspera – Til að fara yfir prófið smellir þú á Grade á bláu stikunni.
Image RemovedImage Added


Nú færð þú upp lista yfir öll þau próf sem þú hefur aðgang að yfirferð í – Finished þýðir að prófinu er lokið og hægt er að fara yfir það.
Image RemovedImage Added


Eftir að hafa smellt á prófið opnast þessi gluggi – þú smellir á appelsínugula takkann sem á stendur Open final grading (neðri hnappurinn er til að staðfesta einkunnir þegar búið er að fara yfir allt).
Image RemovedImage Added


Nú opnast listi yfir nemendur – þú sérð aðeins prófnúmer og hefur ekki aðgang að nöfnum nemenda fyrr en að yfirferð lokinni.

Til að fara yfir smellir þú á prófnúmer og þá opnast úrlausn þess nemanda.
Image RemovedImage Added


Nú sérð þú spurningar sem voru í prófinu, svartur punktur við nr spurningar þýðir að það eigi eftir að fara yfir svarið (svört ör bendir á) – til að fá upp úrlausn nemanda smellir þú á heiti spurningar (bláir stafir).
Image RemovedImage Added


Nú sérð þú spurninguna og þar fyrir neðan svar nemanda

  • Svört ör: einkunn fyrir svar – þú getur smellt á viðeigandi einkunn
  • Rauð ör: ef þú þarft að gefa einkunn í hálfum þá smellir þú á Use decimals og skrifar einkunnina í reitinn (notar punkt í stað kommu)
  • Ljósgrænn hringur: Hér getur þú skipt milli spurninga þessa nemanda Blá ör: Hér smellir þú til að fara aftur í úrlausn nemandans.

Image Added

Image RemovedImage Added


Hér sérðu einkunnir fyrir hverja spurningu fyrir sig og þar fyrir ofan Total marks – einkunn nemanda á skalanum 0-100

Til að fara aftur í listann yfir nemendur smellir þú á Candidates uppi í vinstra horni.
Image RemovedImage Added

Undir Your Grade og Grades og Final grade koma einkunnir og 0 undir marks breytist í rétta tölu eftir því sem þú ferð yfir prófin.

Þegar þú hefur lokið yfirferðinni þá smellir þú á Back to overview efst í vinstra horni.
Image RemovedImage Added


Að lokum þarf að staðfesta einkunnina – það færir einkunnir yfir í Uglu og þaðan eru þær svo færðar yfir í Canvas – til þess að hefja þetta ferli þá er smellt á Confirm final grading.

Það getur tekið u.þ.b. 10-20 mínútur að færa einkunnir úr Inspera í Ugla.
Image RemovedImage Added


Þegar einkunnir eru komnar inn í Uglu hefur þú sem kennari aðgang að nöfnum og prófnúmerum.

Smelltu á Rafræn próf við námskeiðið (svört ör).
Image RemovedImage Added


Hér sérð þú lista yfir Inspera prófin í námskeiðinu.

Þegar búið er að færa einkunnir úr Inspera birtast tvö tákn þar sem þú hefur aðgang að nafnalista með prófnúmeri nemenda (græn ör) og excel skjali með nafni og einkunn (rauð ör).

Til þess að færa einkunnir úr Uglu yfir í Canvas smellir þú á blýantstáknið (ljósblá ör).
Image RemovedImage Added

Á þessari síðu er hægt að:

  • Græn ör: Hér getur þú séð próf og niðurstöður inni í Inspera
  • Blá ör: Hér getur þú séð nafnalista með prófnúmerum
  • Rauð ör: Hér getur þú hlaðið niður excel skjali með niðurstöðum prófsins
  • Appelsínugul ör: Hér smellir þú til þess að færa einkunnir yfir í Canvas

Image RemovedImage Added


Smelltu á Færa yfir í Canvas - það tekur smá tíma fyrir einkunnir að birtast í Canvas Í glugganum sérðu inn í hvaða verkefni einkunnir eru lesnar

ATH stillingar í Canvas eru þannig að einkunnir eru faldar þangað til þú póstar þeim.
Image RemovedImage Added