Samþykkjandi
Samþykktarferill í ORRA
Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda
Útg. 2,0 - Apríl 2017
Table of Contents |
---|
1. Leiðbeiningar FJS fyrir notendur Orra – fjs.is
Á heimasíðu Fjársýslu ríkisins er að finna leiðbeiningar sem snúa sérstaklega að rafrænum reikningum. Þar er að finna leiðbeiningar bæði sem snúa að stofnunum og birgjum. Meðal leiðbeininga sem snúa að stofnunum má nefna:
...
- Stillingar á vafra
- Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda
- Leiðbeiningar fyrir bókara stofnunar með eigið bókhald
- Skýrslur í fjárhag
2. Um samþykkt reikninga – hlutverk samþykkjanda
Samþykkjandi er starfsmaður stofnunar sem gegnir hlutverki í rafrænu samþykktarferli Orra. Samþykkt reikninga er yfirleitt skipt milli tveggja til þriggja aðila, verkefni samþykkjanda í samþykktarferli eru:
...
Það er á ábyrgð stofnunar að hlutverk hvers starfsmanns sé skýrt í samþykktarferli.
Starfsmenn sem gegna hlutverki í samþykktarferli fá tilkynningu í tölvupósti og þurfa að fara reglulega inn í sjálfsafgreiðslu Orra og afgreiða allar tilkynningar sem bíða. Starfsmaður getur tengst Orra með venjulegum hætti eða tengst utan vinnustaðar með því að nota vefslóð:
heima.orri.is
Yfirlit yfir rafrænt samþykktaferli
Ferli reikninga í samþykktarferli er eftirfarandi:
...
- Eðlilegt er að birgi sendi ekki pappír samhliða rafrænum reikningum
- Stefnt er að því að öll regluleg viðskipti fari af innkaupakortum og á rafræna reikninga.
- Það er verkefni kaupandans að hafa samband við birgja ef hann vill gera athugasemdir við á reikning eða afhendingu vöru og þjónustu, kalla eftir leiðréttingu og/eða kreditreikningi
Aðgangur samþykkjanda
Notendur sem gegna hlutverki í samþykktarferli þurfa að hafa:
...
Allir notendur Orra eiga að fá skráð þessi atriði þegar þeir eru stofnaðir í Orra.
Tími til samþykktar
Samþykkjandi sem fær tilkynningu um reikning í samþykktarferli hefur samtals 7 daga til að bregðast við reikningnum, honum er send ítrekun eftir fjóra daga sem gildir í 3 daga. Sé ekki brugðist við reikningnum innan 7 daga er hann sendur til yfirmanns (tilgreindur í Starfsmannakerfi Orra).
3. Hvar finn ég tilkynningar?
Þegar notandi tengist Orra birtast tilkynningar á verkefnalista (hægra megin á aðalvalmynd). Einnig má finna tilkynningar undir ábyrgðarsviði Sjálfsafgreiðsla starfsmanna.
...
Þegar notandi tengist Orra birtast tilkynningar á verkefnalista (hægra megin á aðalvalmynd). Einnig má finna tilkynningar undir ábyrgðarsviði Sjálfsafgreiðsla starfsmanna.
Skoða tilkynningar
Þegar tilkynning er opnuð sýnir hann lista yfir Opnar tilkynningar. Smellið á viðkomandi krækju. Takið einnig eftir Tímafresti notanda, lengst til hægri í línu.
...
Athugasemd, birtist bókara. Kemur fram í samþykktarsögu
4. Hvernig á að afgreiða reikninga
Samþykkjandi opnar tilkynningu. Hún skiptist í nokkra hluta:
...
Allar aðgerðir eru skráðar í samþykktarsögu, einnig eru athugasemdir geymda.
Skoða reikning
Hægt er að skoða reikning sem er í samþykktarferli með því að smella á krækju í samþykktar- tilkynningu. Reikningar eru birtir í PDF skjali. Þeir eru flestir sýndir í sama útliti til einföldunar.
Viðhengi með reikningi
Ef viðhengi eru við reikninginn birtast þau í PDF skjali á eftir reikningi.
Bókari getur bætt viðhengjum við reikning, t.d. scannað inn skjöl.
Reikningi hafnað
Helstu ástæður þess að starfsmaður hafnar reikningi eru:
Bókun reiknings: Samþykkjandi skráir athugasemd til bókara sem breytir bókun. Reikningi er alltaf hafnað þegar koma þarf einhverjum breytingum eða leiðréttingum til bókhaldsins.
Reikningurinn sjálfur: Samþykkjandi hafnar reikningi vegna viðskiptakjara s.s. verð. Starfsmaður er sjálfur ábyrgur fyrir að hafa samband við birgja og fá reikning leiðréttan eða fá útgefinn kreditreikning.
!worddav19f51d80feec04d8324d448d5170f179.png|height=137,width=580!Athugasemd, birtist bókara. Kemur fram í samþykktarsöguEf reikningi er hafnað þarf alltaf að skrá ástæðu höfnunar í svæðið Aths. (athugasemdir starfsmanns). Starfsmaður getur sett inn athugasemd hvort sem reikningi er hafnað eða hann samþykktur.
Athugið, Ef bókun reiknings er breytt krefur samþykktarferillinn stundum þann sem hafnaði reikningi aftur um samþykki. Með því er kerfið að kalla eftir samþykkt á kreditbókun, þ.e. það vill fá heimild til að færa ranglega bókaðan reikning af fyrra viðfangi, áður en hann er bókaður á nýtt viðfang og sendur til samþykktar. Unnið er í að koma í veg fyrir slíka virkni en því miður hefur vandinn hefur ekki verið leystur að fullu.
5. Verkbókhald
Hjá stofnunum sem bóka reikninga á verk og verkhluta í verkbókhaldi eru reikningar sendir til samþykktar á ábyrgðarmannn verks. Tilkynning til ábyrgðarmanns er eins nema bókunarstrengur reiknings vísar í verk og verkhluta, ekki viðföng og tegundir.
Að öðru leyti virka samþykktarferlar eins og hjá stofnun sem bókar reikninga beint í fjárhag.
6. Tímamörk í ferli og ítrekun tilkynninga
Þegar starfsmaður færi tilkynningu um reikning sem bíður afgreiðslu hefur hann samtals sjö daga til að afgreiða hann. Að liðnum fjórum dögum er honum send ítrekun. Sé reikningi ekki sinnt innan sjö daga (samtals) er tilkynning send á yfirmann viðkomandi starfsmanns.
Athugið, að þessi tímamörk taka ekki tillit til eindaga eða gjalddaga reiknings.
Stigmögnun (ítrekun) til yfirmanns
Ef starfsmaður sinnir ekki hlutverki sínu er tilkynning send yfirmanni hans. Sú tilkynning er svipuð almennu tilkynningunni fyrir utan auka-hnapp. „Resend to Approver" sem gerir yfirmanni mögulegt að senda tilkynningu aftur til starfsmanns og fær hann þá aftur fimm daga til að sinna henni. Tilkynningarnar líta eins út í vinnulistanum nema það bætist „stigmagnað úr" aftast við lýsinguna.
Ef yfirmaðurinn sinnir tilkynningunni ekki innan fimm daga er reikningi sjálfvirkt hafnað, án skýringar. Í þvi tilfelli þarf bókari að taka afstöðu til reikningsins og ákveða hvað skal gera.
Endurúthlutun tilkynninga
Við endurúthlutun tilkynninga er beiðni um afgreiðslu framsend til annars starfsmanns. Það gerist ef starfsmaður vill af einhverjum ástæðum að annar starfsmaður fari yfir og taki afstöðu til reikningsins.
...
Ef óskað er eftir áliti eða samþykki annars aðila við einstaka reikninga er einfaldast að prenta þá út og láta viðkomandi skrifa upp á. Starfsmaður skráir síðan í samþykktarferli tilvísun í þann aðila sem athugasemd og geymir áritaðan pappír með gögnum bókhalds.
7. Orlofsreglur
Orlofsreglur flytja tímabundið verkefni samþykkjanda yfir á staðgengil/fulltrúa. t.d. á meðan starfsmaður er í orlofi. Starfsmaður setur SJÁLFUR upp eigin orlofsreglur og verður að gæta þess að gera það ÁÐUR en orlof hefst. Reglan tilgreinir hver á að taka við verkefnum og tímabil. Notandi tengist Orra, smella á Sjálfsafgreiðsla starfsmanna og svo Tilkynningar:
...
- Framsenda svar Alltaf skal haka í Framsenda svar. Athugið, sé regla vistuð með "Flytja tilkynningareignarhald" þá þarf að eyða henni og byrja upp á nýtt.
- Þegar smellt er á Apply er reglan vistuð. Reglan verður virk á upphafsdagsetningu.
Viðhald á orlofsreglum
Þegar búið er að skrá orlofsreglu birtist hún með svipuðum hætti og sést hér að neðan. Hægt er að skoða virkar orlofsreglur í verklið: Sjálfsafgreiðslu starfsmanna > Tilkynningar
(sjá lið nr.2) og breyta þeim.
...
- Samþykktarsaga sýnir upprunalegan starfsmann sem samþykkjanda og nafn þess sem leysir af kemur fram í athugasemd.
- Ágætt er að regla taki gildi nokkrum dögum áður en frí hefst sem tryggir að hún er virk áður en stafsmaður fer í frí.
8. Stillingar á PDF birtingu
Hvernig birtast PDF skjölin í ólíkum vöfrum
Ólíkir vafrar birta PDF skjöl með ólíkum hætti. Yfirleitt er notast við Acrobat Reader forritið. Bæði er hægt að keyra það í vafra (in browser) eða utan vafra (stand alone). Vandinn er að hegðun og stillar forrits geta verið breytilegar eftir aðstæðum.
Leiðbeiningar um uppsetningu Acrobat Reader fyrir vafra er að finna hér:
...
Hér er hægt að stilla hvort notað er lesforrit í vafra eða í Acrobat Reader (utan vafra)
Mozilla Firefox
Nýrri útgáfur af Firefox bjóða upp á þrjár leiðir til að skoða PDF skjöl. Með honum fylgir innbyggt forrit til að skoða PDF skjöl sem virðist vera takmörkunum háður. Notendur geta skipt um forrit til að skoða. Til að breyta hvaða forrit er notað til að skoða PDF skjöl í Firefox:
...
- Veljið tákn lengst til hægri efst á skjá:og veljið Options.
- Veljið flipa: Application
- Finnið línu: Portable Document Format (PDF)
- Í fellivali hægra megin, veljið annan tveggja kosta:
- Preview in Firefox– notar innbyggt skoðunarforrit
- Use Adobe Reader (default)– notar Acrobat Reader í nýjum glugga.
- Use Adobe Acrobat (in Firefox)– notar Acrobat Reader í Firefox glugga
Stillingar á PDF birtingu
Við birtingu skjala setur Orri ÖLL viðhengi reiknings í eitt PDF skjal. Fylgiskjöl lenda aftan við reikninginn.
Stundum eru ólíkar síður eru með ólíkri upplausn og sumar síður því ólæsilegar. PDF forritið er þá að þvinga sumar síðurnar niður í stærð (sjá mynd).
Internet Explorer:
Firefox, innbyggt skoðunarforrit:
Google Crome:
Acrobat reader:
...