Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Í LLEAP hermikennsluhugbúnaðinum er sjúklingaskjár sem er hægt að setja upp á venjulega tölvu. Í hermisetrinu er venjuleg tölva aftan á snertiskjá sem staðsettur er við sjúkrarúm.

Byrjið á því að ganga úr skugga um að Ef skjárinn er ekki uppi, athugið hvort kveikt sé á tölvunni með því að athuga hvort það sé ljós á takkanum sem kveikir á henni. Ef ekki, kveikið á tölvunni. Ef ljósið logar, prufið að snerta skjáinn eða kveikja á honum. Í sumum tilfellum þarf að kveikja á skjánum með fjarstýringu.

Athugið að betra er að tengja tölvuna eða spjaldtölvuna sem stjórnar tilfellinu við dúkkuna áður en sjúklingaskjárinn er tengdur henni. Ef það er ekki gert, getur verið að sjúklingaskjárinn missi samband við dúkkuna og þurfi að tengjast henni aftur.

Tölvan er uppsett þannig að hún ræsir hugbúnaðinn sjálfkrafa þegar kveikt er á tölvunni. Ef hugbúnaðurinn kemur ekki upp eða er ekki opinn, þá er hann ræstur með því að smella á táknið “Laerdal Patient Monitor” á skjáborðinu image-20240705-145443.png eða endurræsa tölvuna

Til þess að tengjast dúkku, þá þarf að velja viðkomandi dúkku í listanum og smella á hana. Athugið að fleiri en ein dúkka getur komið fram í listanum. Nöfn dúkkanna eru í flestum tilfellum á hægri hlið dúkkunnar þar sem kveikt er á nýju dúkkunum.

Ef dúkka eða stjórnbúnaður fyrir dúkku er ekki notaður heldur hermir á stjórntölvunni, þá kemur hann upp í glugganum “Virtual Simulator” og er valinn þar.

...

Athugið að skjárinn sýnir ekki upplýsingar nema vera tengdur dúkku eða hermir keyrður á tölvunni. Þó er hægt að nota hann án þess að hafa dúkkuna sem slíka, heldur dugar að hafa stjórnbúnað úr eldri dúkku og spjaldtölvuhermi keyrður á stjórntölvunnitölvunni.

Expand
titleKeyra hermi fyrir Lleap hermikennsluhugbúnað
Include Page
Keyra hermi fyrir Lleap hugbúnaðinn
Keyra hermi fyrir Lleap hugbúnaðinn

...