Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Þessi síða er ætluð til að auka og auðvelda þér aðgengi að margvíslegri fræðslu og upplýsingum sem tengist kennslu í HA. Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri (KHA) heldur utan um þessa síðu. Önnur markmið og hlutverk KHA er að veita fagleg aðstoð við kennara í þróun kennsluhátta, hvort sem er í staðar- eða fjarnámi, í formi almennrar ráðgjafar, námskeiða og þróunarstarfs með áherslu á sviði upplýsingatækni og kennslufræði.

Table of Contents
minLevel1
maxLevel7

Rafræna þjónustuborð Kennslumiðstöðvar HA (KHA)

Hvernig á að senda inn verkbeiðni?

  1. Farið er inn á vefsíðu Þjónustborðs HA og notandi skráir sig inn.

  2. Þar næst velur notandi hvaða deild og hvað hann þarf aðstoð með. Einnig er hægt að leita.

  3. Beiðnin er fyllt út og send af stað fær notandinn tölvupóst því til staðfestingar.

Hér er hægt að kynna sér Vinnuverklag KHA Þjónustuborðs

WiFi - Eduroam

Eduroam er kerfi samtengdra auðkenningarþjóna hjá rannsókna- og háskólanetum víðsvegar í heiminum.
Með tengingu við Eduroam, geta notendur háskóla og rannsóknastofnana tengst netum annara Eduroam tengdra aðila víðs vegar um heiminn, með því að auðkenna sig við eigin auðkenningarþjóna. Viðkomandi háskóli eða rannsóknarstofnun veitir einnig utanaðkomandi aðilum (þ.e. aðilum frá öðrum Eduroam tengdum stofnunum) aðgang að sínu eigin neti undir sömu formerkum.

FortiClient VPN

Hægt er að tengjast netkerfi Háskólans með VPN (Virtual Private Network) og fá þannig aðgang að gagnasöfnum líkt og tölvur sem tengdar eru staðarneti Háskólans.

Snjallkort - starfsmannaskírteini

Snjallkortið er allt í senn:

  • aðgangskort að prentkerfinu

  • bókasafnskort

  • aðgangskort að húsnæði HA

Teams Símkerfi

Hér má finna leiðbeiningar um símkerfi háskólans.

Prentkerfi HA

Prentkerfið er skýjalausn og gerir okkur kleift að senda prentverk frá tölvu upp í prentskýið og ná svo í það á hvaða prentara sem er í skólanum.

Ugla

Ugla er upplýsingakerfi HA og slóðin inn á hana er https://ugla.unak.is.

Office 365

Háskólinn er með leyfissamning við Microsoft um aðgengi nemenda og starfsmanna um Office 365. Þetta er því þannig hagað að allir nemendur eru með notanda inn á Office 365 gátt skólans og inniheldur, póstinn, office pakkann og OneDrive. 
Til að skrá sig inn á Office365, farðu inn á http://office.unak.is

Canvas - almennt og Canvas - kennarar

Canvas er kennsluumsjónarkerfi Háskólans á Akureyri.

Panopto upptökukerfi

Panopto er upptökukerfi háskólans, en kerfið er uppsett í kennslustofum sem upptökur fara fram.

Orri

  • Fjárhagskerfið heldur utan um bókhald ríkissjóðs og stofnana ríkisins.

  • Mannauðskerfið heldur utan um starfsmanna- og launagreiðslukerfi ríkisins.

  • Vinnustund er vaktaáætlunar- og viðverukerfi.