J205 er búin búnaði til hermikennslu með áherslu á hjúkrunarfræði. Stofan er tvískipt, kennslustofa með sæti fyrir 22 annars vegar og rými með 8 sjúkrarúmum hins vegar. Við eitt rúmið er myndavél, hljóðnemi og sjúklingaskjár sem er hægt að nota til að fylgjast með hermikennslu í kennslustofunni og/eða öðrum kennslustofum eftir hentugleika. Í stofunni eru 2 dúkkur með tilheyrandi búnaði frá framleiðandanum Leap.
Manage space
Manage content
Integrations