Lykilorði er breytt í Uglu: ugla.unak.is - Uglan mín - Stillingar - Breyta lykilorði
Eftir að hafa skráð þig inn smellir þú á "Stillingar" og því næst "Breyta lykilorði"
Fyrst slærðu inn það lykilorð sem er í gildi (Núverandi lykilorð). Svo skrifar þú nýtt lykilorð í næstu tvo reiti og smellir á "Breyta lykilorði".
ATH að Lykilorð verður að vera minnst tólf stafir að lengd og verður að innihalda að minnsta kosti þrennt af eftirfarandi
Tölustaf
Tákn
stóran bókstaf
lítinn bókstaf
Hægt er að nota íslenska stafi og sértákn en við mælum ekki með því vegna þess að stundum lenda notendur á lyklaborði sem ekki er með íslenska bókstafi.