Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

Version 1 Next »

Uppsetning á windows

Hægt er að setja upp tengingu við prentkerfið á Windows tölvum. Svona er það gert:


  • Ýta á Windows takkann á lyklaborðinu
  • skrifa eftirfarandi í leitargluggann \\prent.unak.is\print
  • ýta á Enter
  • skrá inn HA netfagið (allt netfangið, líka @unak.is)
  • skrá inn lykilorðið
  • ýta á Enter

Windows setur upp prentrekilinn og þarf að smella á "Install Driver" þegar sá gluggi kemur upp. Eftir það er prentarinn klár.

Uppsetning á Mac

Hægt er að setja tengingu við prentkerfið á Mac tölvum. Svona er það gert:


  1. Fara inn á þessa síðu: http://www.canon-europe.com/support/products/imagerunner/imagerunner-advance-c5235i.aspx?type=drivers&driverdetailid=tcm:13-1403171&os=OS
  2. Smellið á græna Download takkann hægra megin á síðunni.
  3. Opna skrána þegar hún er komin í tölvuna
  4. Opna möppuna iR-ADV C5235_5240 og keyra skrána í þeirri möppu og muna hvar hún endar
  5. Fara í „Eplið" og í" System Preferences"
  6. Veljið þar „Print & Scanner"



  7. Þá kemur upp valmynd sem sýnir uppsetta prentara á vélinni. Smellið þar á „+" neðarlega í vinstra horninu til að bæta við prentara.



  8. Veljið „Advanced" takann (Ef enginn er „Advanced" takkinn sjá *). 
    * „Advanced" takkinn er ekki alltaf sýnilegur í Apple. Þá þarf að hægrismella á stikuna hægra megin við „More Printers" og velja „Customize Toolbar" og síðan er „Advanced" táknið dregið og staðsett við hlið More Printers.
  9. Skrifið eftirfarandi í viðeigandi reiti:
    Type: LPD/LPR Host or Printer
    URL: lpd://notandi@prent.unak.is/mac (notandi er ha-notendanafnið)
    Print Using: Fara í Other og finna og velja skrána úr skrefi 5
  10. Smellið á Add og prentarinn er tengdur.
  • No labels