Uppsetning á windows
Hægt er að setja upp tengingu við prentkerfið á Windows tölvum. Svona er það gert:
- Ýta á Windows takkann á lyklaborðinu
- skrifa eftirfarandi í leitargluggann \\prent.unak.is\print
- ýta á Enter
- skrá inn HA netfagið (allt netfangið, líka @unak.is)
- skrá inn lykilorðið
- ýta á Enter
Windows setur upp prentrekilinn og þarf að smella á "Install Driver" þegar sá gluggi kemur upp. Eftir það er prentarinn klár.
Uppsetning á macOS
- Náið í eftirfarandi skrá til að setja upp prentarann. Sækja.
- Opna skrána þegar hún er komin í tölvuna. Keyra uppsetninguna til enda.
- Opna System Preferences í gegnum merkið uppi í horninu vinstra megin.
- Veljið þar Printers & Scanners
- Þá kemur upp gluggi sem sýnir uppsetta prentara á vélinni. Smellið þar á + neðarlega í vinstra horninu til að bæta við prentara. Þá opnast Add Printer glugginn
- Veljið IP flipann og skráið inn eftirfarandi upplýsingar:
Address: notandi@prent.unak.is
Protocol: Line Printer Daemon - LPD
Queue: Mac
Name: prent.unak.is
Location:
Use: Smellið á Select Software → Veljið Canon iR-ADV C5235/5240 PS og ýta á Ok - Smellið á Add og prentarinn er tengdur.