Spurningarnar sjást ekki, bara hvítur skjár:
Þetta getur gerst ef tölvan missir samband við net í stutta stund. Til þess að laga þetta, þá er oftast nóg að fara á öftustu síðuna í prófinu (skilasíðan) og velja þar eina spurningu úr listanum. Það lætur vafrarann endurhlaða prófinu.
Lyklaborðið mitt fór yfir á annað tungumál:
Til að skipta um tungumál á lyklaborði, þá er ýtt á
PC: [ctrl]+[shift]
MAC: [control]+[space]
Ég læsti tölvunni (Windows) og nú er rauður skjár sem er ekki hægt að skrifa eða haka í neitt á
ýttu á [ctrl] + [alt] + [delete]. Þá ætti að koma skjár til þess að skrá þig inn á tölvuna. Eftir það, þá ættir þú að geta skrifað inn lykilorðið sem prófverðir hafa til þess að komast aftur inn í prófið
General
Content
Integrations