Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 8 Next »

AirServer er hugbúnaður sem getur tekið á móti þráðlausri mynd- og hljóðsendingu frá öðrum tækjum búnum þráðlausu netkorti eins og fartölvum, símum og spjaldtölvum. Þessi hugbúnaður er oftast hafður á sér tölvu eins og er í sumum fundarherbergjunum. Þar af leiðandi þarf að stilla viðkomandi skjá á þann inngang sem tölvan sem keyrir hugbúnaðinn er tengd við, eða HDMI 2 í flestum tilvikum.

Athugið: Ekki er hægt að tengjast fleiri en einum skjá þráðlaust, en hins vegar geta fleiri en einn sent þráðlaust á einn skjá samtímis. AirServer er oftast tengdur þeim skjá sem er á vinstri hönd þegar horft er á skjáina

Fyrst þarf að stilla skjáinn á réttan inngang, til dæmis HDMI 2

Hér eftir eru svo leiðbeiningar eftir mismunandi stýrikerfum hvernig tengjast á þráðlausri myndsendingu:

 Windows 10
  • Haldið inni Windows takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á takkann “p”

  • Veljið “Connect to wireless display”

  • Viðkomandi AirServer tæki ætti að koma upp í listanum. Smellið á hann og sláið inn kóðann sem birtist á skjánum sem er verið að tengjast

 Windows 11
  • Haldið inni Windows takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á takkann “k”

  • Smellið á viðkomandi myndmóttakara sem þið viljið tengjast

  • Sláið inn kóðann sem birtist á skjánum sem þið viljið tengjast

  • No labels