- Created by Valgeir Árnason, last modified on 27, Aug, 2024
You are viewing an old version of this page. View the current version.
Compare with Current View Page History
« Previous Version 10 Current »
**Vinsamlegast athugið að þessar leiðbeiningar eru í vinnslu og eru því ekki tilbúnar **
Stjórnbúnaður hermisetursins samanstendur af myndavélakerfinu Xprotect frá framleiðandanum Milestone, hússtjórnarkerfinu Crestron og hermikennslukerfinu LLeap frá framleiðandanum Laerdal.
Hentugast er að byrja á að:
Kveikja á þeim dúkkum sem á að nota og bíða eftir hósta og- eða öndunarhljóði.
Ræsa tölvu eða spjaldtölvu sem á að nota til þess að stjórna viðkomandi dúkku og tengjast dúkkunni. Athugið að hægt er að stilla forritið þannig að það tengist sjálfkrafa þeirri dúkku sem var síðast í notkun. Því þarf að ganga úr skugga um að það hafi tengst réttri dúkku í hvert skipti.
Ræsa sjúklingaskjá og láta hann tengjast viðkomandi dúkku. Athugið að hægt er að stilla skjáinn þannig að hann tengist sjálfkrafa þeirri dúkku sem var síðast í notkun. Því þarf að ganga úr skugga um að hann hafi tengst réttri dúkku í hvert skipti.
Ræsa Milestone Xprotect forritið og velja réttan hljóðnema
Nokkrar mismunandi dúkkur eru í notkun, en hér verður talað um nýrri og eldri dúkkur. Í grófum dráttum er munurinn sá að nýrri dúkkurnar eru með innbyggðum stjórnbúnaði en eldri dúkkurnar eru með utanáliggjandi stjórnbúnaði auk rafhlöðu. Tengilega séð er ekki annar munur á þeim og verður því ekki fjallað sérstaklega um hvora tegundina fyrir sig.
Dúkkurnar eru með rafhlöðu sem þarf að sjá til þess að þær séu hlaðnar. Þó er hægt að hafa dúkkurnar í sambandi við rafmagn með meðfylgjandi spennubreyti en taka þarf tillit til þess að þá er dúkkan ekki jafn hreyfanleg þar sem ekki má velta henni á hliðina þar sem tengin geta skemmst. Þetta á einnig við um nettengingu. Þær geta verið bæði þráðlausar og þráðtengdar
Kveikja á dúkkunni
Ýtið á takkann á stjórnbúnaðinum
Bíðið þar til ljósið á stjórnbúnaðinum hættir að blikka og bæði loga stöðugt
Dúkkan er nú tilbúin fyrir tengingu með Lleap hugbúnaðinum
LLEAP hugbúnaðurinn er notaður til þess að stjórna dúkkunum. Það er ýmist hægt að stjórna þeim úr tölvunni þar sem hugbúnaðurinn er uppsettur eða sérstakri spjaldtölvu sem þeim fylgja.
Athugið að ekki er hægt að tengjast dúkku frá fleiri en einu tæki í einu
Ræsið fartölvuna í stjórnrými. Lykilorðið er SimUser
Opnið “Laerdal Simulation Home” og smellið á “LLEAP Instructor Application” ef hugbúnaðurinn opnast ekki sjálfkrafa
Hér veljum við “Patient Simulator” og veljum þar dúkkuna sem að við viljum nota.
Þá kemur skjár sem segir “Run a session”
Veljið Manual mode fyrir handstýrð tilfelli þar sem leiðbeinandi hefur stjórnina
Veljið Automatic mode fyrir tilfelli sem hugbúnaðurinn keyrir sjálfkrafa og leiðbeinandi hefur ekki stjórnina
Hér er valið tilfelli ef það er til fyrir þessa hermikennslu. Annars er “Healthy patient” valið og smellt á “OK”
Hér er hægt að byrja tilfellið með forstilltum gildum með því að velja “Start session” eða hægt að breyta gildum áður en tilfellið byrjar með því að velja “Edit before starting”
Niður í hægra horninu er stjórnborð sem segir okkur hvort tilfellið sé keyrandi eða ekki. Á þessari mynd er það ekki í keyrslu heldur í bið. Til þess að byrja tilfellið, er smellt á “Spila”. Til að stöðva tilfellið og byrja nýtt, er smellt á “Stopp”. Einnig er hægt að byja tilfellið upp á nýtt með forvöldum gildum með því að smella á örina sem bendir í hring
Til þess að breyta sjúklingaskjánum er farið í “Tools” -> “Patient Monitor” og til dæmis “3Wave” valið
Hér er valinn sá skjár sem er hentugastur fyrir þann nemendahóp/kennslu hverju sinni.
Nú þarf að kveikja á sjúklingaskjá í kennslurými með fjarstýringu (ef ekkert gerist gæti verið slökkt á tölvu á bakvið skjá og þá þarf að ræsa hana) Sjá nánar í kaflanum um sjúklingaskjá
Hinkra í smá stund þá ræsir skjárinn sjálfur monitorinn
Sjónvarpið/monitor í herberginu er snertiskjár
Passa þarf að velja rétta dúkku til þess að skjárinn sýni réttan monitor
Hægt er að smella á línurit og gildi á stjórnskjánum til þess að breyta þeim. Hér er dæmi um hjartalínurit. Til þess að breyta um línurit er viðeigandi rit valið og smell á “OK”
Einnig er hægt að breyta öllum gildum sem sjást á skjánum. Hér er dæmi um súrefnismettun
Hægt er að senda skrár svo sem myndir, myndbönd eða skjöl svo sem niðurstöður rannsókna á sjúklingaskjáinn.
veljið “File” → “Transfer Media Files”
Veljið hvort um ræðir röntgenmynd, myndband eða niðurstöður rannsókna
Smellið á “Add files”
Hugbúnaðurinn er með safn af röntgenmyndum. Hægt er að velja úr þeim eða hlaða inn eigin myndum, myndböndum eða skjölum sem niðurstöðum rannsókna. Niðurstöður rannsókna taka við textaskrám (.txt), vefsíðum (.htm / .html) og PDF skrám.
Veljið þær skrár sem á að nota í tilfellinu og smellið á “Open”
Þegar kemur að því að nota skrárnar sem búið er að setja inn, þá er farið aftur ínn á sama stað (“File” → “Transfer Media Files”), viðkomandi mynd eða skjal valið og smellt á “Transfer to learner’s monitor”. Einnig er hægt að skrifa skilaboð sem birtast. Þá birtist myndin á sjúklingaskjánum. Hægt er að kalla myndina aftur fram á skjánum eftir að henni hefur verið lokað með því að fara í valmyndina á skjánum og velja
Hægt er að láta dúkkuna gefa frá sér hljóð hvort sem er spilun á hljóðskrám sem eru í hugbúnaðinum, tala fyrir dúkkuna eða breyta líkamshljóðum.
Til þess að láta dúkkuna gefa frá sér hljóð sjálfkrafa:
Veljið kyn og aldur
Veljið hljóðskrá í listanum og smellið á “Spila” takkann
Til þess að tala fyrir dúkkuna er smellt á takkann til að tala svo hann verði grænn og talað í hljóðnemann á heyrnatólunum. Til þess að hætt að tala fyrir dúkkuna er aftur smellt á takkann svo hann verði aftur svartur
Til þess að breyta líkamshljóðum eru viðkomandi staðir valdir og viðkomandi tilfelli valin í fellilistanum. Einnig er hægt að smella á “More body sounds” til að fá upp valmyndina sýnda að neðan
Hægt er að hlaða niður LLeap hugbúnaðinum í eigin tölvu og nota án þess að setja inn leyfi. Hugbúnaðurinn mun ekki tengjast dúkku án leyfis, en hægt er að ræsa hermi sem hugbúnaðurinn getur unnið með í staðinn. Þó er ekki hægt að nota annan sjúklingaskjá en þann sem leiðbeinandi sér án þess að setja inn leyfi.
Hér er hægt að sækja hugbúnaðinn: https://laerdal.com/ProductDownloads.aspx?productId=423
Sækið “Laerdal Learning Application” og setjið upp á tölvuna
Til þess að keyra hugbúnaðinn í hermi, þá er hann ræstur eins og venjulega:
“Laerdal Simulation Home” → “Simulate” → “Lleap - Instructor Application”
Þá lætur hugbúnaðurinn vita af því að það sé ekkert leyfi uppsett.
Smellið á “Add license later” til að halda áfram
Ef nota á hugbúnaðinn án þess að tengja dúkku við hann, til dæmis ef leikari leikur sjúkling eða til þess að læra á hugbúnaðinn, þá er hægt að keyra hermi fyrir dúkku til þess að tengja sjúklingaskjá og stjórntölvu við.
Til þess að ræsa herminn, þá er valið “Virtual Simulator” → “Local computer” og sú dúkka valin sem óskað er eftir að herma
Þá keyrir hermir á tölvunni sem líkir eftir þeirri dúkku sem var valin. Þá er hægt að nota hugbúnaðinn með þeim takmörkum að ekki er hægt að tengja dúkku eða sjúklingaskjá aukalega
Skólinn á tvær dúkkur frá Leap ásamt tvemur Simpad auk eins sírita (patient monitor). Síritinn virkar eingöngu með “Simulation box” fyrir aðra hvora dúkkuna. Hann reynir sjálfkrafa að tengjast sömu dúkku og var síðast tengd. Til þess að setja upp hermikennslu, byrjið á því að:
· Tengja rafhlöðuna við boxið (hleðslutækið ef þarf)
· Tengið dúkkuna við boxið (ef það á að nota dúkku)
· Kveikið á boxinu og bíðið í eina mínútu (þar til bæði ljósin kvikna)
· Kveikið á Simpad og bíðið eftir að hann tengist Simbox
· Tengið netið við Simbox (gula snúran)
· Kveikið á síritanum (patient monitor, tölvan aftan á skjánum)
Athugið að Simpad slekkur á sér ef hann er ekki notaður í 30 mín
Síritinn á að ræsa öll forrit sjálfkrafa. Ef ekki, þá þarf að ræsa:
· (NDI) Screen Capture (til að sjá síritann í annari stofu)
· Laerdal Patient Monitor
Til að horfa á myndavélarnar og síritann (Axis companion og NDI Tools þarf að vera uppsett á viðkomandi tölvu):
· Ræsið NDI Studio Monitor til að sjá síritann:
o Veljið “Stofa-J205-Patient” -> “Intel HD Graphics 630 1”
· Ræsið “Axis Companion”, lykilorð er: Horfa!
Í LLEAP hermikennsluhugbúnaðinum er sjúklingaskjár sem er hægt að setja upp á venjulega tölvu. Í hermisetrinu er venjuleg tölva aftan á snertiskjá sem staðsettur er við sjúkrarúm.
Ef skjárinn er ekki uppi, athugið hvort kveikt sé á tölvunni með því að athuga hvort það sé ljós á takkanum sem kveikir á henni. Ef ekki, kveikið á tölvunni. Ef ljósið logar, prufið að snerta skjáinn eða kveikja á honum. Í sumum tilfellum þarf að kveikja á skjánum með fjarstýringu.
Athugið að betra er að tengja tölvuna eða spjaldtölvuna sem stjórnar tilfellinu við dúkkuna áður en sjúklingaskjárinn er tengdur henni. Ef það er ekki gert, getur verið að sjúklingaskjárinn missi samband við dúkkuna og þurfi að tengjast henni aftur.
Tölvan er uppsett þannig að hún ræsir hugbúnaðinn sjálfkrafa þegar kveikt er á tölvunni. Ef hugbúnaðurinn kemur ekki upp eða er ekki opinn, þá er hann ræstur með því að smella á táknið “Laerdal Patient Monitor” á skjáborðinu eða endurræsa tölvuna
Til þess að tengjast dúkku, þá þarf að velja viðkomandi dúkku í listanum og smella á hana. Athugið að fleiri en ein dúkka getur komið fram í listanum. Nöfn dúkkanna eru í flestum tilfellum á hægri hlið dúkkunnar þar sem kveikt er á nýju dúkkunum.
Ef dúkka eða stjórnbúnaður fyrir dúkku er ekki notaður heldur hermir á stjórntölvunni, þá kemur hann upp í glugganum “Virtual Simulator” og er valinn þar.
Þegar sjúklingaskjárinn tengist dúkkunni, kemur hann sjálfkrafa upp. Hér er hann sýndur þar sem búið er að breyta uppsettningunni með því að velja “Main setup” → “Change screen” → “BigNum” og virkja öll gildi með því að snerta þau.
Athugið að skjárinn sýnir ekki gildin fyrr en þau eru snert eins og fyrirmæli á skjánum segja til um
Hægt er að láta skjáinn sýna gildin með því að haka í öll gildin sem á að sýna í stjórnhugbúnaðinum
Athugið að skjárinn sýnir ekki upplýsingar nema vera tengdur dúkku eða hermi keyrður á stjórntölvunnitölvunni.
Ef nota á hugbúnaðinn án þess að tengja dúkku við hann, til dæmis ef leikari leikur sjúkling eða til þess að læra á hugbúnaðinn, þá er hægt að keyra hermi fyrir dúkku til þess að tengja sjúklingaskjá og stjórntölvu við.
Til þess að ræsa herminn, þá er valið “Virtual Simulator” → “Local computer” og sú dúkka valin sem óskað er eftir að herma
Þá keyrir hermir á tölvunni sem líkir eftir þeirri dúkku sem var valin. Þá er hægt að nota hugbúnaðinn með þeim takmörkum að ekki er hægt að tengja dúkku eða sjúklingaskjá aukalega
Skólinn á tvær dúkkur frá Leap ásamt tvemur Simpad auk eins sírita (patient monitor). Síritinn virkar eingöngu með “Simulation box” fyrir aðra hvora dúkkuna. Hann reynir sjálfkrafa að tengjast sömu dúkku og var síðast tengd. Til þess að setja upp hermikennslu, byrjið á því að:
· Tengja rafhlöðuna við boxið (hleðslutækið ef þarf)
· Tengið dúkkuna við boxið (ef það á að nota dúkku)
· Kveikið á boxinu og bíðið í eina mínútu (þar til bæði ljósin kvikna)
· Kveikið á Simpad og bíðið eftir að hann tengist Simbox
· Tengið netið við Simbox (gula snúran)
· Kveikið á síritanum (patient monitor, tölvan aftan á skjánum)
Athugið að Simpad slekkur á sér ef hann er ekki notaður í 30 mín
Síritinn á að ræsa öll forrit sjálfkrafa. Ef ekki, þá þarf að ræsa:
· (NDI) Screen Capture (til að sjá síritann í annari stofu)
· Laerdal Patient Monitor
Til að horfa á myndavélarnar og síritann (Axis companion og NDI Tools þarf að vera uppsett á viðkomandi tölvu):
· Ræsið NDI Studio Monitor til að sjá síritann:
o Veljið “Stofa-J205-Patient” -> “Intel HD Graphics 630 1”
· Ræsið “Axis Companion”, lykilorð er: Horfa!
Milestone myndavélakerfi sýnir mynd frá myndavélum, skjámynd frá sjúklingaskjáum og hljóð frá þeim myndavélum sem búnar eru hljóðnema eða sértækum hljóðnemum í rými. Hér fyrir neðan eru notkunarleiðbeiningar fyrir hugbúnaðinn.
Tölvan sem keyrir Milestone er uppsett þannig að hugbúnaðurinn á að keyrast sjálfkrafa við ræsingu á tölvu. Ef hugbúnaðurinn er ekki í gangi þó kveikt sé á tölvunni, þá er smellt á táknmyndina fyrir “Milestone Express” á skjáborðinu. Ef það er ekki sjáanlegt, þá er smellt á Windows merkið í stikunni, valið “All” → “Milestone” → “Xprotect Smart Client 2023”. Einnig er hægt að endurræsa tölvuna til þess að forritið keyrist sjálfkrafa
Forritið er uppsett þannig að innskráning á að gerast sjálfkrafa við ræsingu á forritinu. Ef það gerist ekki, þá eru eftirfarandi upplýsingar settar inn:
Computer = ha-herm-milesto
Authentication = Basic Authentication
User name = hermikennsla
Password = hermikennsla
Hakað í “Remember password” og “Auto-login”
Því næst er smellt á “Connect”
Ef það kemur upp eftirfarandi gluggi þá er smellt á “Allow” til þess að halda áfram
Ef upp kemur vandamál við innskráningu, þá þarf að lesa þau villuskilaboð sem birtast.
Hér er dæmi um rangt lykilorðið eða notandanafn.
Hér er dæmi um nafn á netþjóni er ekki rétt innslegið í “Computer” eða ef ekki næst samband við netþjón. Hafa þarf samband við tæknimann ef nafnið á netþjóninum er örugglega rétt í dálknuim “Computer”
Þegar búið er að ræsa forritið og skrá inn notanda er hægt að horfa á myndavélar, horfa á sjúklingaskjá og hlusta á hljóðnema. Athugið að eingöngu er hægt að hlusta á einn hljóðnema í einu. Það er hægt að velja eina myndavél til að horfa á, eða sniðmáta þar sem hægt er að raða inn myndavélum og skjám eftir hentugleika. Einnig er hægt að velja fyrirfram ákveðinn sniðmáta þar sem þær myndavélar, hljóðnemar og sjúklingaskjáir sem tilheyra því rými sem verið er að vinna í eru fyrirfram uppraðaðir. Ef myndavél er hreyfanleg, þá birtast örvar í neðra hægra horni myndavélarinnar. Þá er hægt að hreyfa viðkomandi myndavél til með músinni eða með því að smella á ör í þá átt sem myndavélin á að færast í.
Crestron er framleiðandi að hússtjórnarkerfi sem er hægt að nota til að stýra svo gott sem öllum nettengdum búnaði. Hér er Crestron notaður til þess að stjórna hljóði, hljóðnemum, ljósum, gardínum, skjávörpum, skjávarpatjöldumn og sjónvörpum. Í flestum tilvikum er lítill stjórnskjár þar sem viðkomandi hlutum er stýrt frá.
- No labels