Í LLEAP hermikennsluhugbúnaðinum er sjúklingaskjár sem er hægt að setja upp á venjulega tölvu. Í hermisetrinu er venjuleg tölva aftan á snertiskjá sem staðsettur er við sjúkrarúm.
Byrjið á því að ganga úr skugga um að kveikt sé á tölvunni með því að athuga hvort það sé ljós á takkanum sem kveikir á henni. Ef ekki, kveikið á tölvunni.
Athugið að betra er að tengja tölvuna eða spjaldtölvuna sem stjórnar tilfellinu við dúkkuna áður en sjúklingaskjárinn er tengdur henni. Ef það er ekki gert, getur verið að sjúklingaskjárinn missi samband við dúkkuna og þurfi að tengjast henni aftur.
Tölvan er uppsett þannig að hún ræsir hugbúnaðinn sjálfkrafa þegar kveikt er á tölvunni. Ef hugbúnaðurinn kemur ekki upp eða er ekki opinn, þá er hann ræstur með því að smella á táknið “Laerdal Patient Monitor” á skjáborðinu
Til þess að tengjast dúkku, þá þarf að velja viðkomandi dúkku í listanum og smella á hana. Athugið að fleiri en ein dúkka getur komið fram í listanum. Nöfn dúkkanna eru í flestum tilfellum á hægri hlið dúkkunnar þar sem kveikt er á nýju dúkkunum. Ef dúkka eða stjórnbúnaður fyrir dúkku er ekki notaður heldur hermir á stjórntölvunni, þá kemur hann upp í glugganum “Virtual Simulator” og er valinn þar.
Þegar sjúklingaskjárinn tengist dúkkunni, kemur hann sjálfkrafa upp. Hér er hann sýndur þar sem búið er að breyta uppsettningunni með því að velja “Main setup” → “Change screen” → “BigNum” og virkja öll gildi með því að snerta þau. Athugið að skjárinn sýnir ekki gildin fyrr en þau eru snert eins og fyrirmæli á skjánum segja til um
Athugið að skjárinn sýnir ekki upplýsingar nema vera tengdur dúkku eða hermir keyrður á tölvunni. Þó er hægt að nota hann án þess að hafa dúkkuna sem slíka, heldur dugar að hafa stjórnbúnað úr eldri dúkku og spjaldtölvu.