Smelltu á Námsefni (e. Modules).
Smelltu síðan á +Eining (e. +Modules)
Gefðu Námsefninu (e. Module) nafn.
Ef þú vilt takmarka Námsefnið (e. Module) við ákveðinn tímabil, hakaðu þá við Læsa við (e. Lock until) og veldu dagsetinguna.
Einnig er hægt að bæta við forkröfu á hverja einingu í Námsefninu (e. Modules). Það þýðir að nemandi þurfi á klára einhver ákveðin atriði til þess að geta byrjað á þessari einingu.
Þegar bætt er við forkrafa á einingu, þá birtist gluggi með öðrum einingum í Námsefninu (e. Modules).
Þú getur haft margar forkröfur á einingu. Smelltu á +Bæta við forkröfu (1) til að bæta fleiri kröfum við. Ef þú vilt eyða út kröfu, smelltu þá á X táknið fyrir aftan kröfuna (2).
Smelltu síðan á Bæta við einingu (e. Add Module).
Þá er einingin komin í Námsefnið (e. Modules).
Til að gera breytingu á einingu, smelltu á táknmyndina með punktunum þremur (1) og veldu Breyta (2).