Þetta eru tölvur sem eru óháðar kennslutölvunni. Þær tengjast sér skjá (í sumum tilfellum 2 skjáum) þar sem hugmyndin er að þáttakendur á fjarfundi séu sýnilegir þeim sem eru í stofunni í svokölluðu “gallery view”. Einnig er myndavél við skjáina sem sýnir þá sem eru á staðnum. Það þarf ekki að skrá persónulega aðganga inn á þessar tölvur, en þar má nota gestaaðganginn gestur1 til að skrá inn á tölvuna.
Opnið Zoom, veljið “Join meeting” og sláið inn númerið á fundinum. Hakið í “Don´t connect to audio” og smellið á “Join”
Ekkert hljóð á að vera á fundinum í þessari tölvu, hvorki hljóðnemi né hátalarar
Í “View” á fundinum, veljið “Gallery view”
Deilið skjá. Dragið línuna til sem aðskilur deilda efninu og myndunum af þáttakendum þannig að þattakendur sjáist í stað þess sem er verið að deila
...