...
Smelltu næst á +Próf (e. +Quiz).
...
Veldu Ný Próf (e. New Quizzes) (1) og hakaðu við að kerfið muni eftir vali þínu á próf í þessu námskeiðið (e. Remember my choice for this course) (2) og smelltu á Velja (e. Submit) (3).
.
ATH. Þessi gluggi kemur ekki upp þegar valið er að muna eftir vali þínu á þessu námskeiðið (e. Remember my choice for this course). Þá opnast valið sjálfkrafa við gerð á næsta prófi.
...
Hér þarf síðan að velja nafn á prófið (1), skilgreina stigafjöldann (2), velja í hvaða hóp prófið er í (3), ákveða hvernig einkunn birtist nemendum (4) og ef próf á ekki að gilda til lokaeinkunnar þá þarf að haka við þennan reit (5).
...
Næst þarf að velja hverjir eiga að taka prófið (1), velja skiladag (2) og ákveða hvort prófið eigi að vera aðgengilegt í ákveðinn tíma (3).
...
Búa til spurningar
Smelltu á Vista (e. Save) ef allar stillingar eru tilbúnar og þú ætlar að vinna í prófinu seinna (1). Ef prófið er tilbúið fyrir nemendur þá er hægt að smella á Vista og Birta (e. Save & Publish) til að vista og birta prófið fyrir nemendum (2).
...
Til þess að hefja vinnu að búa til spurningar í prófinu þarf að smella á Byggja (e. Build)
...
Þá opnast rithamurinn í prófinu, hér er hægt að:
Gefa prófinu titil og skrifa inn upplýsingar um prófið
Spurningabankar
Niðurstöður (Hæfni í námskeiði)
Forskoðun
Yfirlit spurninga
...
Til að búa til spurningu, smelltu á + táknið.
...
Þá opnast gluggi þar sem hægt er að:
Smella hér til að velja spurningu úr spurningabanka
Búa til spurningu með því að velja fyrst tegund spurningar
Setja inn texta og búa til spurningu sem tengist textanum
...
Hanna og breyta spurningum
Titill á spurningu
Spurningin
Svarmöguleikar
Stillingar á spurningu (Bæta við rafrænni reiknivél, mismunandi stig á svör og stökka svörum)
Tengja við hæfniviðmið
Bæta spurningu við spurningabanka
Setja inn hversu mörg stig spurningin gefur í prófinu
Skrifa endurgjöf fyrir rétt- og röng svör og almenn endurgjöf
...
Smelltu á ruslatunnu táknið fyrir aftan spurninguna til að eyða henni út úr prófinu.
...
Yfirlit spurninga
...
Í yfirliti spurnina er hægt að sjá:
Númer á spurningunni
Tegund spurningar
Hversu mörg stig svörin gilda
Upphafið á spurningunni
Hversu mörg stig spurningin gildir í prófinu
...
Smelltu á textann til opna spurninguna ef þú vilt breyta/uppfæra spurninguna.
Hægt er færa spurningarnar í prófinu með með að smella á punktana og draga spurninguna á nýjan stað
...
Smelltu á Til baka (e. Return) til að fara til baka í stillingar á prófinu.
...