Opnaðu SpeedGrader fyrir verkefnið eða prófið sem á að fara yfir. Veldu næst nafnið á þeim nemenda sem þú ætlar að fara yfir verkefni/próf.
Hér má finna svæði sem hægt er að skrifa inn endurgjöf (e. Assingment Comments).
Athugasemdir sem settar eru á hópaskil birtast öllum nemendum sem eru í þeim hóp sem skilaði verkefninu (1).
Hópaverkefni þar sem einkunn er gefin hverjum nemanda fyrir sig þarf að velja hvort senda eigi að senda athugasemdina á alla nemendur í hóp eða einstaka nemendur (2). Í því tilfelli velur athugasemdagluggin sjálfkrafa að senda á staka nemendur, til þess að senda á allan hópinn skal smella á Senda á meðlimi í hóp (3) (e. Send comment to the whole group).
Skrifaðu inn endurgjöfina (1) og smelltu á Skila (2) (e. Submit) til að setja endurgjöfina inn í verkefnið.
Hægt er að láta skjal fylgja með endurgjöfinni með því að smella á bréfaklemmuna og velja gögn úr tölvunni.
...
Einnig er hægt að setja inn endurgjöf í formi myndbands.
Auk þess er hægt að setja inn endurgjöf sem tal skilaboð.
Mundu að smella á skila inn (e. Submit) til að vista endurgjöfina.