Athugið að þessi stilling hefur áhrif á skjáupptöku á Panopto. Ef taka á upp í panopto, vinsamlegast skoðið vel þær stillingar hér að neðan.
Í öllum stofum er hægt að nota skjávarpa og tölvuskjá á kennaraborði á aðskildan hátt, á sama hátt og tvo tölvuskjái sem eru tengdir við sömu tölvuna. Hins vegar þarf að hafa í huga að forrit sem eru ekki sérstaklega gerð fyrir þessa virkni verða örlítið snúin í notkun þar sem draga þarf það sem á að sýna á skjávarpanum frá skjánum á kennaraborðinu og yfir á skjávarpann. Þar sem skjávarpi er í sumum tilfellum á bak við kennaraborð, þá liggur ekki alltaf ljóst fyrir hvar á skjánum á kennaraborðinu þarf að fara út af til að komast á hinn skjáinn.
Til þess að virkja tvo aðskilda skjái:
Smellið á skilaboðin neðst í hægra horninu á skjáborðinu og smellið á “Project”
eða:
Haldið inni “Start” takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á “P” takkann
Í valmyndinni sem birtist, veljið “Extend”
Nú ætti ekki að vera það sama á skjánum á kennaraborðinu og á skjávarpanum. Ef það er ekki ljóst í hvaða átt á að færa glugga eða mús til að komast yfir á hinn skjáinn:
Hægri smellið á skjáborðið og smellið á “Display settings”
Myndin sem kemur sýnir afstöðu skjánna. Hægt er að smella á “Identify” til að sýna með númeri hvor skjárinn er 1 og hvor er númer 2.