Hægt er að hlaða niður LLeap hugbúnaðinum í eigin tölvu og nota án þess að setja inn leyfi. Hugbúnaðurinn mun ekki tengjast dúkku án leyfis, en hægt er að ræsa hermi sem hugbúnaðurinn getur unnið með í staðinn. Þó er ekki hægt að nota annan sjúklingaskjá en þann sem leiðbeinandi sér án þess að setja inn leyfi.
Hér er hægt að sækja hugbúnaðinn: https://laerdal.com/ProductDownloads.aspx?productId=423
Sækið “Laerdal Learning Application” og setjið upp á tölvuna
Til þess að keyra hugbúnaðinn í hermi, þá er hann ræstur eins og venjulega:
“Laerdal Simulation Home” → “Simulate” → “Lleap - Instructor Application”
Þá lætur hugbúnaðurinn vita af því að það sé ekkert leyfi uppsett.
Smellið á “Add license later” til að halda áfram
Ef nota á hugbúnaðinn án þess að tengja dúkku við hann, til dæmis ef leikari leikur sjúkling eða til þess að læra á hugbúnaðinn, þá er hægt að keyra hermi fyrir dúkku til þess að tengja sjúklingaskjá og stjórntölvu við.
Til þess að ræsa herminn, þá er valið “Virtual Simulator” → “Local computer” og sú dúkka valin sem óskað er eftir að herma
Þá keyrir hermir á tölvunni sem líkir eftir þeirri dúkku sem var valin. Þá er hægt að nota hugbúnaðinn með þeim takmörkum að ekki er hægt að tengja dúkku eða sjúklingaskjá aukalega