Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 23 Current »

LLEAP hugbúnaðurinn er notaður til þess að stjórna dúkkunum. Það er ýmist hægt að stjórna þeim úr tölvunni þar sem hugbúnaðurinn er uppsettur eða sérstakri spjaldtölvu sem þeim fylgja.

Athugið að ekki er hægt að tengjast dúkku frá fleiri en einu tæki í einu

 Dúkku stjórnað með tölvu

Ræsið fartölvuna í stjórnrými. Lykilorðið er SimUser

  • Opnið “Laerdal Simulation Home” og smellið á “LLEAP Instructor Application” ef hugbúnaðurinn opnast ekki sjálfkrafa

image-20240827-154017.png
  • Hér veljum við “Patient Simulator” og veljum þar dúkkuna sem að við viljum nota.

image-20240828-084530.png
  • Þá kemur skjár sem segir “Run a session”

    • Veljið Manual mode fyrir handstýrð tilfelli þar sem leiðbeinandi hefur stjórnina

    • Veljið Automatic mode fyrir tilfelli sem hugbúnaðurinn keyrir sjálfkrafa og leiðbeinandi hefur ekki stjórnina

image-20240828-084950.png
  • Hér er valið tilfelli ef það er til fyrir þessa hermikennslu. Annars er “Healthy patient” valið og smellt á “OK”

image-20240828-085613.png
  • Hér er hægt að byrja tilfellið með forstilltum gildum með því að velja “Start session” eða hægt að breyta gildum áður en tilfellið byrjar með því að velja “Edit before starting”

image-20240828-085913.png
  • Niður í hægra horninu er stjórnborð sem segir okkur hvort tilfellið sé keyrandi eða ekki. Á þessari mynd er það ekki í keyrslu heldur í bið. Til þess að byrja tilfellið, er smellt á “Spila”. Til að stöðva tilfellið og byrja nýtt, er smellt á “Stopp”. Einnig er hægt að byja tilfellið upp á nýtt með forvöldum gildum með því að smella á örina sem bendir í hring

image-20240828-090153.png
  • Til þess að breyta sjúklingaskjánum er farið í “Tools” -> “Patient Monitor” og til dæmis “3Wave” valið

image-20240828-090811.png
  • Hér er valinn sá skjár sem er hentugastur fyrir þann nemendahóp/kennslu hverju sinni.

  • Nú þarf að kveikja á sjúklingaskjá í kennslurými með fjarstýringu (ef ekkert gerist gæti verið slökkt á tölvu á bakvið skjá og þá þarf að ræsa hana) Sjá nánar í kaflanum um sjúklingaskjá

    • Hinkra í smá stund þá ræsir skjárinn sjálfur monitorinn

    • Sjónvarpið/monitor í herberginu er snertiskjár

    • Passa þarf að velja rétta dúkku til þess að skjárinn sýni réttan monitor

 Stjórna gildum og línuritum
  • Hægt er að smella á línurit og gildi á stjórnskjánum til þess að breyta þeim. Hér er dæmi um hjartalínurit. Til þess að breyta um línurit er viðeigandi rit valið og smell á “OK”

image-20240828-102620.png
  • Einnig er hægt að breyta öllum gildum sem sjást á skjánum. Hér er dæmi um súrefnismettun

image-20240828-103010.png

 Senda mynd, myndband eða niðurstöður rannsókna í sjúklingaskjá

Hægt er að senda skrár svo sem myndir, myndbönd eða skjöl svo sem niðurstöður rannsókna á sjúklingaskjáinn.

  • veljið “File” → “Transfer Media Files”

image-20240828-094913.png
  • Veljið hvort um ræðir röntgenmynd, myndband eða niðurstöður rannsókna

image-20240828-100332.png
  • Smellið á “Add files”

image-20240828-100417.png
  • Hugbúnaðurinn er með safn af röntgenmyndum. Hægt er að velja úr þeim eða hlaða inn eigin myndum, myndböndum eða skjölum sem niðurstöðum rannsókna. Niðurstöður rannsókna taka við textaskrám (.txt), vefsíðum (.htm / .html) og PDF skrám.

  • Veljið þær skrár sem á að nota í tilfellinu og smellið á “Open”

image-20240828-101521.png
  • Þegar kemur að því að nota skrárnar sem búið er að setja inn, þá er farið aftur ínn á sama stað (“File” → “Transfer Media Files”), viðkomandi mynd eða skjal valið og smellt á “Transfer to learner’s monitor”. Einnig er hægt að skrifa skilaboð sem birtast. Þá birtist myndin á sjúklingaskjánum. Hægt er að kalla myndina aftur fram á skjánum eftir að henni hefur verið lokað með því að fara í valmyndina á skjánum og velja

image-20240828-101818.png

 Hljóð í dúkkum

Hægt er að láta dúkkuna gefa frá sér hljóð hvort sem er spilun á hljóðskrám sem eru í hugbúnaðinum, tala fyrir dúkkuna eða breyta líkamshljóðum.

  • Til þess að láta dúkkuna gefa frá sér hljóð sjálfkrafa:

    • Veljið kyn og aldur

    • Veljið hljóðskrá í listanum og smellið á “Spila” takkann

image-20240828-104735.png
  • Til þess að tala fyrir dúkkuna er smellt á takkann til að tala svo hann verði grænn og talað í hljóðnemann á heyrnatólunum. Til þess að hætt að tala fyrir dúkkuna er aftur smellt á takkann svo hann verði aftur svartur

image-20240828-104850.png
  • Til þess að breyta líkamshljóðum eru viðkomandi staðir valdir og viðkomandi tilfelli valin í fellilistanum. Einnig er hægt að smella á “More body sounds” til að fá upp valmyndina sýnda að neðan

image-20240828-104647.png

 Hlaða niður Lleap á eigin tölvu til að prufa

Hægt er að hlaða niður LLeap hugbúnaðinum í eigin tölvu og nota án þess að setja inn leyfi. Hugbúnaðurinn mun ekki tengjast dúkku án leyfis, en hægt er að ræsa hermi sem hugbúnaðurinn getur unnið með í staðinn. Þó er ekki hægt að nota annan sjúklingaskjá en þann sem leiðbeinandi sér án þess að setja inn leyfi.

Hér er hægt að sækja hugbúnaðinn: https://laerdal.com/ProductDownloads.aspx?productId=423

Sækið “Laerdal Learning Application” og setjið upp á tölvuna

Til þess að keyra hugbúnaðinn í hermi, þá er hann ræstur eins og venjulega:

“Laerdal Simulation Home” → “Simulate” → “Lleap - Instructor Application”

image-20240827-142637.png

Þá lætur hugbúnaðurinn vita af því að það sé ekkert leyfi uppsett.

Smellið á “Add license later” til að halda áfram

image-20240827-142904.png

Ef nota á hugbúnaðinn án þess að tengja dúkku við hann, til dæmis ef leikari leikur sjúkling eða til þess að læra á hugbúnaðinn, þá er hægt að keyra hermi fyrir dúkku til þess að tengja sjúklingaskjá og stjórntölvu við.

Til þess að ræsa herminn, þá er valið “Virtual Simulator” → “Local computer” og sú dúkka valin sem óskað er eftir að herma

image-20240827-143146.pngimage-20240827-143257.png

Þá keyrir hermir á tölvunni sem líkir eftir þeirri dúkku sem var valin. Þá er hægt að nota hugbúnaðinn með þeim takmörkum að ekki er hægt að tengja dúkku eða sjúklingaskjá aukalega

 Dúkku stjórnað með spjaldtölvu

Skólinn á tvær dúkkur frá Leap ásamt tvemur Simpad auk eins sírita (patient monitor). Síritinn virkar eingöngu með “Simulation box” fyrir aðra hvora dúkkuna. Hann reynir sjálfkrafa að tengjast sömu dúkku og var síðast tengd. Til þess að setja upp hermikennslu, byrjið á því að:

·       Tengja rafhlöðuna við boxið (hleðslutækið ef þarf)

·       Tengið dúkkuna við boxið (ef það á að nota dúkku)

·       Kveikið á boxinu og bíðið í eina mínútu (þar til bæði ljósin kvikna)

·       Kveikið á Simpad og bíðið eftir að hann tengist Simbox

·       Tengið netið við Simbox (gula snúran)

·       Kveikið á síritanum (patient monitor, tölvan aftan á skjánum)

 

Athugið að Simpad slekkur á sér ef hann er ekki notaður í 30 mín

 

Síritinn á að ræsa öll forrit sjálfkrafa. Ef ekki, þá þarf að ræsa:

·      (NDI) Screen Capture (til að sjá síritann í annari stofu)

·       Laerdal Patient Monitor

Til að horfa á myndavélarnar og síritann (Axis companion og NDI Tools þarf að vera uppsett á viðkomandi tölvu):

·       Ræsið NDI Studio Monitor til að sjá síritann:

o   Veljið “Stofa-J205-Patient” -> “Intel HD Graphics 630 1”

·       Ræsið “Axis Companion”, lykilorð er: Horfa!

  • No labels