Undanfarið hefur borið á vandræðum með að tengjast eduroam á Windows 10.
En til þess að tengjast er hægt að setja stillingarnar inn handvirkt í Windows 10.
Uppsetning á WPA (802.1x auðkenningu) fyrir Windows 10
Fyrst þarf að opna Control Panel í Windows 10.
Það er hægt að gera með því að slá inn control panel í leitarstikuna neðst til vinstri hjá Windows takkanum, og opna svo Control PanelVeldu svo View network status and tasks.
Því næst smellirðu á Setup a new connection or network.
Smelltu á Manually connect to a new network.
Sláðu inn upplýsingar um eduroam þráðlausa netið eins og sýnt er hér að neðan og smelltu á Next.
Network Name: eduroam (allt í lágstöfum).
Security Type: WPA2-Enterprise
Encryption Type: AES
Smelltu svo á Change connection settings.
Smelltu á Security dálkinn.
Gættu þess að undir Choose a network authentication sé valið:
Microsoft: Protected EAP (PEAP) og smelltu svo á Settings.Afhakaðu Validate server certificate kassann og smelltu svo á Configure
Hakaðu úr Automatically use my Windows logon name and password (and domain if any) kassann, og smelltu svo á OK.
Smelltu svo aftur á OK til að loka fyrri glugganum.
Smelltu svo á Advanced Settings.
Í 802.1x stillingunum hakaðu þá í Specify authentication mode og veldu þar User Authentication.
Smelltu svo á OK og svo aftur OK til að loka fyrri settings glugga og síðan á Close til að fara út úr uppsetningunni.
Þá er orðið óhætt að reyna að tengjast eduroam þráðlausa netinu.
Í innskráningargluggann seturðu svo inn þitt unak netfang og lykilorð
Nú er komin á tenging við eduroam.