Opnaðu SpeedGrader fyrir verkefnið eða prófið sem á að fara yfir. Veldu næst nafnið á þeim nemenda sem þú ætlar að fara yfir verkefni/próf.
Einkunn á verkefni er í samræmi við stillingar á einkunn þegar verkefnið/prófið var búið til (1). Ef matskvarði var tengdur við verkefnið/prófið er hægt að nálgast hann með því að smella á skoða matskvarða (e. View Rubric).
Ef verkefnið er stillt að engin einkunn er gefin, staðið/fallið, þá þarf að smella á Einkunn (1) og velja lokið/ólokið/afsakað (2).
Þegar einkunn er gefin í formi prósentuhlutfalls þarf að færa töluna inn.
Ef nemandi fær of mörg stig, miðað við stillingu á einkunnargjöf fyrir verkefnið, mun Canvas láta vita. Mögulegt er að leyfa einkunn að standa, ef gefin voru aukastig, eða leiðrétta einkunargjöfina.
Þessi viðvörun birtist við eftirfarandi tilfelli.
Ef fjöldi stiga er meiri en 50% hærri en möguleg stig gefin
Ef auka stafir er stimplaður inn( td. 500 í stað 50)
Ef neikvæð stig eru gefin.
Einkunn er breytt með því að smella í gluggann við hliðin á Einkunn (e. Grade) og skrifa inn nýju einkunnargjöfina.
Hægt er að eyða einkunn út handvirkt með því að smella á gluggann vð hliðin á Einkunn (e. Grade) og stroka einkunina út.