Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 11 Current »


Invigilator/Quit/Unlock password

Lykilorð hvers prófs er birt á upplýsingablaði sem fylgir hverju prófi. Lykilorð sem er notað til þess að prófvörður geti t.d.:

  • staðfest það að nemandi þurfi að endurræsa tölvu og fara aftur inn í prófið.

  • hjálpað nemendum áfram þegar Mac tölva fær upp rauðan skjá

  • aðstoða við aðrar villur sem biðja um lykilorð sem ekki er lykilorðið inn í vafra/próf



Rauður skjár sem er læstur með lykilorði

Quit/Unlock/Invigilator lykilorð slegið inn í reitinn og smellt á örina til að halda áfram. Í prufuprófinu er lykilorðið: HAprufa
Hjá sumum virkar ekki að smella á örina en þá er hægt að smella á Enter þegar búið er að skrifa inn lykilorð
Hjá sumum virkar að haka í override og aðrir þurfa að hætta við, endurræsa vafrann hjá sér og þá virkar að setja lykilorðið og halda áfram.

Þetta gerist helst á tölvum þar sem stýrikerfi eru ekki eru uppfærðar reglulega. Við mælum með því að uppfæra stýrikerfin ef tími gefst til, en ekki þarf að uppfæra í nýrri útgáfu af stýrikerfinu. Athugið þó að töluverðan tíma getur tekið að uppfæra, og því mælum við ekki með því að uppfæra sama dag og próf er haldið.

Einnig geta vírusvarnir og önnur forrit valdið því að þessi skjár birtist. Á skjánum kemur fram hvaða virkni vafrarinn nær ekki að loka. Í þessu dæmi er þetta tölva með OS X stýrikerfi, og er Safari vafarinn að valda því að ekki er hægt að halda áfram. Það er hægt að fara út úr prófinu með áðurnefndu lykilorði, loka þessum forritum (í Windows þarf að loka forritinum og stöðva virknina (end process í task manager)) og prufa að fara inn í prófið aftur.


Annar Microsoft aðgangur innskráður eða að trufla innskráningu

Vafrarar muna innskráningar og geta sótt upplýsingar frá öðrum innskráningum en við á og valdið þar af leiðandi vandamálum við innskráningu. Ein lausn er að nota annan vafrara. Önnur lausn er að nota einn prófíl fyrir hverja innskráningu.

Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að nota fleiri en einn aðgang á sama vafrara.


This browser is not correct!


Þegar það stendur Your browser is not correct og ekki Open in Safe exam browser fyrir neðan þá þarf að hreinsa browsing data (cookies and cache)


Chrome

Smella á punktana þrjá í hægra horninu uppi. Velja More tools – Clear browsing data


Þá kemur upp þessi gluggi.
Það er óþarfi að haka í fyrsta reitinn browsing history en nauðsynlegt að velja neðri tvo.


Í flettiglugganum Time range þarf að velja All time – sjá mynd fyrir neðan.


Firefox

Smella á línurnar 3 efst í hægra horninu og velja Options


Þá opnast vefgluggi þar sem þú vinstra megin smellir á Privacy & security og þar finnur þú Cookies and Site Data og smellir á Clear Data


Nú smellir þú á Clear


Og staðfestir með því að smella á Clear now


Edge

Þú smellir á punktana 3 efst í hægra horni og þar smellir þú á Settings


Þá velur þú Cookies and site permissions á stikunni vinstra megin og smellir svo á Manage and delete cookies and site data


Nú smellir þú á See all cookies and site data


Að lokum smellir þú á Remove all fyrir ofan listann hægra megin

Safari

Þú ferð inn í Prefrences í Safari valmyndinni



Hér smellir þú á Manage website data



Hér smellir þú á Remove all fyrir neðan listann

  • No labels