Möguleg vandamál við innskráningu

 


Invigilator/Quit/Unlock password

Lykilorð hvers prófs er birt á upplýsingablaði sem fylgir hverju prófi. Lykilorð sem er notað til þess að prófvörður geti t.d.:

  • staðfest það að nemandi þurfi að endurræsa tölvu og fara aftur inn í prófið.

  • hjálpað nemendum áfram þegar Mac tölva fær upp rauðan skjá

  • aðstoða við aðrar villur sem biðja um lykilorð sem ekki er lykilorðið inn í vafra/próf




Rauður skjár sem er læstur með lykilorði

Ef upp kemur villa eða ef SafeExam getur ekki lokað ákveðnum forritum þá kemur upp rauður skjár með upplýsingum um villuna. Mikilvægt er að lesa hvaða villa kom upp. Ef ekki tókst að loka ákveðnum hugbúnaði, þá þarf að haka í “Quit SafeExam instead of unlocking”, setja inn “Quit” lykilorðið og loka þeim hugbúnaði sem ekki tókst að loka. Eftir það er hægt að prufa að opna prófið aftur. Á myndinni hér að neðan kemur fram að rangt lykilorð hefur verið slegið inn. Þetta getur komið upp ef vafraranum var ekki lokað eftir síðasta próf sem var tekið. Því þarf að fá lykilorðið fyrir það próf til þess að loka vafraranum.

Quit/Unlock/Invigilator hakað í “Quit SafeExam instead of unlocking”, lykilorð slegið inn í reitinn og smellt á örina til að halda áfram. Í prufuprófinu er lykilorðið: HAprufa1
Hjá sumum virkar ekki að smella á örina en þá er hægt að smella á Enter þegar búið er að skrifa inn lykilorð

Þetta gerist helst á tölvum þar sem stýrikerfi eru ekki eru uppfærðar reglulega. Við mælum með því að uppfæra stýrikerfin ef tími gefst til, en ekki þarf að uppfæra í nýrri útgáfu af stýrikerfinu. Athugið þó að töluverðan tíma getur tekið að uppfæra, og því mælum við ekki með því að uppfæra sama dag og próf er haldið.

Einnig geta vírusvarnir og önnur forrit valdið því að þessi skjár birtist. Á skjánum kemur fram hvaða virkni vafrarinn nær ekki að loka. Í þessu dæmi er þetta tölva með OS X stýrikerfi, og er Safari vafarinn að valda því að ekki er hægt að halda áfram. Það er hægt að fara út úr prófinu með áðurnefndu lykilorði, loka þessum forritum (í Windows þarf að loka forritinum og stöðva virknina (end process í task manager)) og prufa að fara inn í prófið aftur.


Annar Microsoft aðgangur innskráður eða að trufla innskráningu

Vafrarar muna innskráningar og geta sótt upplýsingar frá öðrum innskráningum en við á og valdið þar af leiðandi vandamálum við innskráningu. Ein lausn er að nota annan vafrara. Önnur lausn er að nota einn prófíl fyrir hverja innskráningu.

Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að nota fleiri en einn aðgang á sama vafrara.



This browser is not correct!


Þegar það stendur Your browser is not correct og ekki Open in Safe exam browser fyrir neðan þá þarf að hreinsa browsing data (cookies and cache)