Færa, eyða eða afrita upptöku í aðra möppu (Panopto)

Byrjaðu á því að finna upptökuna sem þú vilt færa eða afrita og færðu músina yfir upptökuna.



Þá kemur kassi, efst uppi í vinstra horninu á upptökunni. Hakaðu í kassann á þeim upptökum sem þú vilt færa, eyða eða afrita. Smelltu síðan á Move, Delete eða Copy. Þegar upptökum er eytt þá þarftu ekki að fara lengra í þessum leiðbeiningum.



Nú þarf að velja möppuna sem afritið á að fara í. Hægt er að velja úr listanum, sem saman stendur af námskeiðum sem þú hefur aðgang að. Einnig er hægt að nota leitargluggann ef námskeiðið sést ekki í listanum.



Þegar búið er að velja möppuna þá þarf aðeins að smella á Copy og þá afritast upptakan.



Ef allt gekk upp, þá stendur Done í staðin fyrir Copy og afrit af upptökunni er núna komið í möppuna sem var valið.



Ferlið er alveg eins við að færa upptöku. Þegar búið er að velja möppuna þá þarf aðeins að smella á Move og færist upptakan.



Ef allt gekk upp, þá stendur Done í staðin fyrir Move og upptakan er núna komin í möppuna sem var valin.