Bæta aðila utan Menntaskýs í teymi
Opnaðu teymið, smelltu á punktana þrjá og veldu Add member.
Skrifaðu inn tölvupóstinn á aðilanum sem á að bæta við og veldu Add as a guest.
Nú er búið að bæta notandanum í teymið. Það getur tekið smá stund fyrir notandann að birtast á lista yfir meðlimi í teyminu.
Hægt er að finna notandann í spjallinu með því að leita fyrst að honum í Teams.
Smelltu á notandann þegar hann kemur upp í leitarglugganum.
Nú er hægt að nota spjallkerfið í Teams með þessum notanda.