Samþykkjandi fjarverandi
Orlofsreglur
Orlofsreglur flytja tímabundið verkefni samþykkjanda yfir á staðgengil/fulltrúa. t.d. á meðan starfsmaður er í orlofi. Starfsmaður setur SJÁLFUR upp eigin orlofsreglur og verður að gæta þess að gera það ÁÐUR en orlof hefst. Reglan tilgreinir hver á að taka við verkefnum og tímabil. Notandi tengist Orra, smella á Sjálfsafgreiðsla starfsmanna og svo Tilkynningar:
Í sjálfsafgreiðslu starfsmanna er smellt á Orlofsreglur
Til þess að stofna orlofsreglu er smellt á hnappinn Stofna reglu
Vörutegund er valið Allt og smellt á hnappinn Næsta
Næst kemur upp flipi Orlofsregla: Svar þar þarf að skrá orlofsregluna sjálfa:
a. Upph.dags. Kerfið kemur sjálfgefið með þann dag og tíma sem Orlofsreglan er stofnuð.
Hægt er að skrá dagssetningu reglu fram í tímann. t.d að hún byrji að virka 01.10.2014 00:00:00. Einnig er hægt að smella á dagatalið hægra megin við reitinn til að velja dagsetningu.
b. Lokadags. Hægt er að setja lokadags. á regluna t.d. 28.10.2014 14:34:34. Reglan hættir þá að virka 28 maí 2011 kl. 14:34. Einnig er hægt að smella á dagatalið hægra megin við reitinn til að velja dagsetningu.
c. Skilaboð Skilaboð til staðgengils/fulltrúa. t.d. „Verð í orlofi næstu viku. Viltu afgreiða alla reikninga fyrir mig.
d. Endurúthluta Hér er staðgengill valinn. Veljið Allir starfsmenn og notendur og smellið á stækkunarglerið og þá opnast leitargluggi. (Sjá mynd hér að neðan)
e. Í leitarglugga er hægt að leita að staðgengli/fulltrúa í starfsmannalista.
Sláið inn nafn stafsmann sem leitað er að eða hluta nafns. Hægt er að nota % til þess að leita eftir hluta nafns t.d. slá inn Þorkell% og fá alla starfsmenn sem heita Þorkell.
Leita skal eftir Heiti og Smellt á hnappinn Hefja. o Þegar staðgengill er fundinn er smellt á táknið undir “Flýtival” o Gætið þess, að þegar leitað er að staðgengli sýnir kerfið alla starfsmenn.
Mikilvægt er að velja starfsmenn sem tilheyra þinni stofnun.
Takið eftir notendanafni sem segir til um hvaða stofnun starfsmaður tilheyrir.
Gætið þess einnig að netfang sé til staðar og rétt. Ef netfang er ekki til staðar skal hafa samband við launafulltrúa stofnunar.
Framsenda svar Alltaf skal haka í Framsenda svar. Athugið, sé regla vistuð með “Flytja tilkynningareignarhald” þá þarf að eyða henni og byrja upp á nýtt.
Þegar smellt er á Apply er reglan vistuð. Reglan verður virk á upphafsdagsetningu.
Viðhald á orlofsreglum
Þegar búið er að skrá orlofsreglu birtist hún með svipuðum hætti og sést hér að neðan.
Hægt er að skoða virkar orlofsreglur í verklið: Sjálfsafgreiðslu starfsmanna > Tilkynningar (sjá lið nr.2) og breyta þeim.
Uppfæra Ef smellt er á „Blýantinn“ undir „Uppfæra“ er hægt að breyta orlofsreglunni.
Eyða Ef smellt er á „Ruslatunnuna“ undir „Eyða“ er orlofsreglunni eytt. Athugið:
Samþykktarsaga sýnir upprunalegan starfsmann sem samþykkjanda og nafn þess sem leysir af kemur fram í athugasemd.
Ágætt er að regla taki gildi nokkrum dögum áður en frí hefst sem tryggir að hún er virk áður en stafsmaður fer í frí.