Padlet

Padlet má líkja við  rafræna „korktöflu" þar sem hægt er að vinna saman á sameiginlegu svæði. Sá sem býr til  Padletvegginn getur boðið öðrum að setja vinnu sína á vegginn. Forritið bíður upp á einfalda leið til að deila efni og safna gögnum

 

Skrá sig inn í fyrsta sinn á Padlet

Smelltu á slóðina hér fyrir neðan til að hefja ferlið.

https://universityofakureyri.padlet.org



Þá opnast ný síða í vefvafranum. Hér þarftu að smella á Log in with Microsoft.



Fylltu út notenda upplýsingar um þig, eða veldu þinn notanda ef hann er nú þegar vistaður í vefvafranum.

Smelltu á Accept til að gefa forritinu leyfi til að nálgast eftirfarandi gögn.



Þá birtist gluggi sem spyr hvort þú viljir fá tilkynningar í tölvuna frá Padlet. Veldu Allow til að leyfa tilkynningar eða Block til að afþakka þær.



Þá er innskráningu lokið og þú getur byrjað að nota Padlet.



Einnig færðu senda staðfestingu í póst, þegar innskráningarferli er lokið.

 

Hvernig á að nota Padlet

 

 

 

Afrita Padlet hlekk (e. link)

Opnaði Padlet vegginn og smelltu á share, sem er efst til hægri á síðunni.



Fáðu afrit af hlekknum með því að smella á Copy to clipboard (eða ef þú vilt fella inn embeded þá nærðu í embeded langa hlekkinn).


Þá kemur upp texti sem gefur til kynna að þú hefur afrita hlekk að Padlet veggnum. Núna þarf að líma hlekkinn á það stað sem þú ætlar að deila honum.

Ef þú ætlar að fella hann inn kemur þetta upp sem þú afritar þar sem boðið er upp á að fella inn slóð.