Skemman

Um Skemmuna

Skemman er rafrænt varðveislusafn íslenskra háskóla fyrir lokaverkefni nemenda. Allir háskólar landsins styðja opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum og vinna markvisst að því að vísindalegt efni verði sem víðast aðgegngilegt. Í Skemmunni er hægt að leita í öllu efni í grunninum og þrengja leit eftir höfundum, titli, efnisorðum, leiðbeinanda eða dagsetningu. 

Reglur um skil í Skemmu 

Öllum lokaverkefnum við HA á að skila rafrænt í Skemmuna. Skiladagur á rafrænu eintaki í Skemmu skal eiga sér stað á settum skiladegi deildar og skilin eru forsenda brautskráningar.

Fyrirspurnum um skil á lokaverkefnum í Skemmu má beina til bókasafns á netfangið bsha@unak.is eða í síma 460 8050.

ATH! Það þarf ekki að skila prentuðu eintaki lokaverkefna til bókasafnsins.

Leiðbeiningar um skil í Skemmu



  1. Ferð inn á skemman.is

  2. Velur "Skil í Skemmuna"

  3. Velur Háskólann á Akureyri

  4. Skráir þig inn með skólanetfanginu@unak.is

  5. Undir valmyndinni "Hefja ný skil" er viðeigandi safn valið og tegund verkefnis. 



Leiðbeiningar koma upp með hverju skrefi í skilaferlinu á Skemmunni. 

  • Lýsing á lokaverkefninu. Svið sem verður að fylla út eru merkt sérstaklega (höfundur, titill, útdráttur), önnur svið eru valkvæð (til dæmis tengd vefslóð, lýsing og styrktaraðili)

  • Hlaða upp skrám. Verkefnið skal vistað á pdf formi. Meginreglan er sú að lokaverkefni í Skemmu séu opin til aflestrar en athugið að óheimilt er að prenta eða afrita þau



Þeir nemendur sem ætla að loka aðgengi að heildartexta tímabundið til dæmis vegna trúnaðarupplýsinga skulu skipta verkefninu upp í eftirfarandi skjöl og gera aðgengileg:

  1. Efnisyfirlit

  2. Heimildaskrá

  3. Fylgiskjöl (ef einhver eru, þótt þau séu lokuð)

  4. Heildartexti (á alltaf vera skráður í Skemmu þótt hann sé lokaður)

  • Staðfesta skil. Til að senda lokaverkefni inn til staðfestingar verður að samþykkja skilmálana



Að yfirferð lokinni er sendur út tölvupóstur með niðurstöðu yfirferðarinnar.

Verkið er samþykkt eða því hafnað í Skemmuna. Ef verkinu hefur verið hafnað er það sent tilbaka og viðkomandi fær tækifæri til að lagfæra það sem er ábótavant og senda inn aftur.

Það er á ábyrgð nemenda að rafrænt eintak lokaverkefnis sé endanleg lokaútgáfa lokaverkefnis sem samþykkt hefur verið af leiðbeinanda og að því fylgi öll fylgigögn sem krafist er.