Vandamál með Panopto

Vandamál með Panopto

Ef þú lendir í vandamálum með Panopto, t.d. hökt í spilun þá er ráð að prófa að eyða út uppsöfnuðum upplýsingum úr vefskoðurum (e. Clear browsing data)

 

Sjá leiðbeiningar hér: Hreinsa vafra (Cache and Cookies)

 

 

Þessi skilaboð birtast ef eitthvert forrit í tölvunni er nú þegar að nota myndavélina. Einungis eitt forrit i einu getur notað myndavélina, þannig að ef forrit eins og til dæmis Zoom eða Teams er að nota myndavélina, þá er ekki hægt að nota hana í Panopto. Til þess að nota hana í Panopto þarf að slökkva á myndinni í viðkomandi forriti og velja svo myndavélina aftur í Panopto

 

Athugið að þetta á ekki við um kennslustofur sem búnar eru Axis myndavélum. Þar er hægt að vera með myndavél í mörgum forritum samtímis

image-20250825-153200.png

 

Upptökutakkinn verður grár og ekki hægt að smella á hann ef ekkert er valið sem hljóðnemi. Til þess að hefja upptöku, þá þarf að velja hljóðnema í “Audio”

image-20250825-154259.png

 

Langar upptökur taka tíma að hlaðast upp, og þurfa að vinnast á netþjóni áður en þær verða aðgengilegar. Ef hins vegar upptaka hleðst ekki upp af einhverjum ástæðum, þá er hægt að endurræsa upphleðsluferlið.

Athugið að ef það eru fleiri en ein upptaka sem ekki hefur hlaðist upp, þá er mælt með því að endurræsa upphleðsluna á einni upptöku í einu

 

  • Byrjiið á því að opna og skrá ykkur inn í Panopto upptökuforritið

  • Veljið “Manage Recordings”

  • Gangið úr skugga um að upptakan sé ekki að hlaðast upp í “Upload Pregress”

  • Í “Currently Uploading Recordings”, takið vel eftir því í hvaða möppu upptakan á að fara

  • Smellið á “Cancel” → “Cancel Upload”

 

Upptakan fer nú í “Offline Recordings”

  • Finnið upptökuna í “Offline Recordings” og smellið á “Upload to Server”

  • Finnið og veljið rétta möppu í stað “Offline Recording”

  • Smellið á “Upload”

Nú ætti upptakan að hlaðast eðlilega upp og færast yfir í “Uploaded Recordings”

Panopto - Upload.gif