Norðurborg (11 manns)
Norðurborg er fundarherbergi fyrir 11 manns sem er staðsett innst á bókasafni í F210. Það er búið fundarbúnaði frá Yealink og tveimur stórum skjáum. Fundarherbergið er bókað í gegnum Outlook sem nordurborg@unak.is.
Tengjast fundi
Ef fundarherbergi var boðið á fund birtist hann á stjórnborðinu og þú getur smellt á Join til að tengja fundarherbergið.
Hægt að hringja beint í einstakling með því að nota Call takkann.
Hægt er að nota Meet now til að hefja nýjan fund.
Hægt er að nota Join with an ID til að tengjast Zoom eða Teams fundi.
Hægt er að skoða herbergið með því að hreyfa myndina til hliðar.