Leiðbeinendur í þjónustunámskeiðum (PebblePad)

Smelltu á slóðina fyrir neðan til að skrá þig inn á PebblePad.
https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak

 

Notendanafnið er netfangið þitt og lykilorð fékkstu sent í tölvupósti frá PebblePad.​ Ef að þú gleymir lykilorðinu er hægt að fara í Forgot password og fá sent nýtt lykilorð.​ Mundu að haka í I have a guest account for PebblePad til að skrá þig inn.

Ath.​ Pósturinn frá PebblePad gæti hafa lent í Junk mail.



Veldu viðeigandi námskeið (þjónusta iðjuþjálfa 1,2 eða 3) – það námskeið sem þú ert leiðbeinandi í.




Þú hefur aðgengi að eyðublöðum nemandans​

  • Veldu viðeigandi eyðublað í felliglugganum, t.d. námsmarkmið eða mat leiðbeinanda á frammistöðu í vettvangsnámi



Námsmarkmið nemenda í sama leiðsagnarhópi birtast fyrir neðan Submission details​.

  • Til að finna markmiðsblöð þíns nemanda er einfaldast að skrifa nafn hans í leitargluggann

  • Í lok fyrstu viku eiga námsmarkmiðin að vera tilbúin og undirrituð af leiðbeinanda​

  • Ef námsmarkmiði er breytt þarft þú að skrifa undir á nýjan leik



Í stöðu- og lokamati eru markmiðin rædd ​

  • Þú merkir við á kvarðanum fyrir markmið​

  • Þú verður að skrá þig inn á PebblePad á þínu aðgangi



Mat nemanda á eigin frammistöðu í vettvangsnámi​

  • Nemandi metur eigin frammistöðu í vettvangsnámi fyrir stöðu- og lokamat​

  • Þar sem nemandinn er notandinn í PebblePad hefur hann ávalt aðgengi að eyðublöðunum sínum, þar á meðal að mati leiðbeinandans​

  • Ætlast er til að nemendur ljúki mati á eigin frammistöðu fyrir mánudag í matsvikunni – fylli matið út á undan leiðbeinandanum​

  • Þú fyllir út mat á frammistöðu nemandans á vettvangi rafrænt í PebblePad í matsvikunni



Mat leiðbeinanda á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi​

  • Þú sækir eyðublaðið mat leiðbeinandi á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi sem merkt er þínum nemanda

  • Fylltu eyðublaðið út samkvæmt leiðbeiningum​

  • Mundu eftir að styðjast við handbók fyrir mat á frammistöðu í vettvangsnámi í iðjuþjálfun. Hana finnur þú á Canvas síðu vettvangsnáms í starfsréttindanámi​

  • Lagt er til að þú fyllir út rafræna matið í þeirri viku sem matið fer fram þannig að nemandinn þinn sé þegar búinn að fylla út sitt mat á eigin frammistöðu



Mat nemanda á reynslu úr  vettvangsnámi

  • Nemandinn fyllir út skjalið mat á reynslu í vettvangsnámi fyrir lokamatið​

  • Nemandinn skilar skjalinu inn í rétt vinnusvæði í PebblePad í fyrir lokamat​

  • Þá getur þú nálgast skjalið undir Submissions

  • Þegar nemandi hefur skilað getur þú vistað skjalið hjá þér með því að velja prentara og hlaðið því niður sem PDF skjali​

  • Ef þú ætlar að vista skjalið, skaltu gera það strax þar sem aðgengi þínu að PebblePad verður lokað strax og vettvangsnáminu lýkur