Fundarmyndavél Ugla

Þessi myndalausn samanstendur af tveimur myndavélum. Annars vegar myndavél staðsett undir skjánum og svo 360° myndavél staðsett á fundarborðinu. Þessi lausn sýnir þá aðila á staðnum sem tala hverju sinni. Myndavélin notar andlitsgreiningu og hljóð til þess að staðsetja þann sem talar. Það ferli getur tekið nokkrar sekúndur og er því eðlilegt að viðkomandi sé ekki kominn í mynd um leið og talað er. Á Uglunni eru eftirfarandi takkar og ljós:

 

 

Ljósið “Hljóðnemi af” logar þegar slökkt er á hljóðnemanum. Til á kveikja á honum,. þá er annaðhvort kveikt á honuum í fundarforritinu eða með því að ýta á takkann “Slökkva á hljóðnema”.

360° myndavélin er rétt staðsett þegar rafmagnssnúran á henni vísar frá sjónvarpinu

Til að nota myndavélarnar í Zoom, þá þarf að velja þær bæði sem mynd og hljóð. Smellið á örina við hliðina á hljóðnemanum og veljið “Echo cancelling speakerphone (Owl bar)” sem hljóðnema og hátalara. Smellið því næst á örina við hliðina á myndavélinni og veljið “Owl camera” sem mynd

Til að nota myndavélarnar í Teams þá þarf að velja þær bæði sem mynd og hljóð

Kveikið á myndavélinni áður en farið er inn á fundinn. Ef rétt myndavél er ekki valin, smellið á tannhjólið sem birtist í hægra horninu niðri við myndina eða veljið “More” → “Settings” → “Device settings” ef þið eruð komin inn á fundinn. Veljið “Echo cancelling speakerphone (Owl bar)” sem hljóð og “Owl camera” sem mynd