SpeedGrader
SpeedGrader er verkfæri sem notað er til þess að auðvelda kennurum að fara yfir verkefni sem lögð eru fyrir nemendur.
Hægt er að nota SpeedGrader til að:
Flokka verkefni eftir nemendum og fela nöfn nemenda í verkefna yfirferð
Skoða upplýsingar fyrir hvern nemenda um skil þeirra
Nota matskvarða í yfirferð
Gefa endurgjöf
Fylgjast með heildareinkunn á meðan yfirferð á sér stað
Fara yfir einn lið í einu í öllum verkefnum
Í SpeedGrader eru fimm svæði
Hér sjást verkefni nemenda (skrifaður texti, hlekkur að heimasíðu, hljóð og/eða myndbands upptaka og skjöl sem nemenda hefur hlaðið inn í skilahólfið)
Einkunn nemenda er skráð í þennan ramma
Ef matskvarði er notaður við einkunnagjöf, þá er kvarðinn opnaður með því að smella á Skoða matskvarða (e. View Rubric)
Skoða innlegg sem nemendur hafa sett inn í verkefnið
Gefa skriflega, tal eða myndbands endurgjöf