Endurheimta atriði úr Canvas (e. restore)

Til að endurheimta atriði sem óvart var eytt í Canvas þarf að setja /undelete fyrir aftan hlekkinn að námskeiðinu og smella á Enter á lyklaborðinu.



Þá opnast síða með atriðum sem hefur verið eytt í námskeiðinu. Til að endurheimta atriði þarf að smella á restore.



Þá opnast gluggi sem spyr hvort þú viljir endurheimta atriðið sem var smellt á. Smelltu á OK til að endurheimta og Cancel til að hætta við.