Búa til fund (e. Schedule appointment group)
Ath. Mikilvægt er að Zoom eða Teams slóð á fund sem tilbúin áður en þetta ferli hefst.
Smelltu á dagatalið.
Smellut næst á + merkið.
Veldu Fundarhópar (e. Appointment Group)
Hér þarf að fylla út í eftirfarandi:
Gefðu fundinunum nafn (e. Name)
Staðsetningu (e. Location) - setja inn Zoom/Teams slóð fyrir fundinn ef hann á að vera á netinu
Á hvaða degi fundurinn fer fram (e. Date)
Á hvaða tímabili yfir daginn á fundurinn að eiga sér stað (e. Time range)
Skipta fundinum niður í hólf (e. Divide into equal slots of). Mundu að smella strax á Byrja (e. Go) til að búa til hólfin
Stillingar (e. Options).
Hvað eiga margir notendur að vera í hverju hólfi (e. Limit each time slot to)
Leyfa nemendum, sem hafa skráð sig í hólf, að sjá hvaða hólf eru ennþá laus
Takmarka hvað nemendur geta skráð sig í mörg hólf
Mikilvægt að velja go (rauði hringurinn) til að fá upp fundartímana sem eru í gangi
Smelltu næst á Velja dagatal (e. Select Calendars) og veldu dagatalið í því námskeiði sem fundurinn á að eiga sér stað.
Þegar dagatalið hefur verið valið, smelltu á Birta (e. Publish) til að birta fundinn fyrir nemendum.